Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 04.04.2013, Side 7

Bæjarblaðið Jökull - 04.04.2013, Side 7
Oft er sagt að landbúnaður sé ein af meginatvinnugreinum Íslendinga. Það er hárrétt en segir þó alls ekki alla söguna. Sveitirnar og atvinnustarfsemin þar er grundvöllur byggðar í landinu því að þorp og bæir án blómlegra sveita eru oftast í vörn og alls kyns vandræðum. Hagsmunir og lífskjör fólksins í sveitunum og þorpunum og bæjunum eru nefnilega afar mikið og margvíslega sam tvinn­ uð og tengd. Sem betur fer vill margt ungt og kraftmikið fólk búa í sveit­ unum og þorpunum og ala þar upp börnin sín og sér réttilega í því alls kyns ávinning og lífsgæði. En einhæft atvinnulíf og fá atvinnutækifæri í sveit­ unum og þorpunum standa þeim fyrir þrifum. Þessu þarf að breyta. Það er afar mikilvægt að stjórnvöld styðji við fjöl­ breytni en ýti ekki undir fá ­ breytni og einhæfni. Skjóta þarf mörgum og styrkum stoðum undir atvinnustarfsemi í sveit­ um og þar teljum við í Bjartri framtíð að séu mjög mikil tæki­ færi. Samfélagið hefur ákveðið að styðja við landbúnað með bein­ greiðslum sem lækka verð til neytenda og tryggja tekjugrunn bænda. Styrkir í landbúnaði hafa að langmestu leyti runnið til framleiðslu á mjólk og sauð­ fjárafurðum. Beingreiðslurnar eru framleiðslutengdar. Til þess að fá þær þarf því að framleiða. Mikilvægt er að draga úr þessari tengingu og breyta bein greiðs­ lum í búsetustyrki þar sem áhugi og tækifæri eru hjá bændum til að beina kröftum sínum að öðru og byggja um leið upp önnur atvinnutækifæri fyrir sjálfa sig og aðra. Styrkirnir mega ekki verða til þess að tækifærin fjölmörgu í sveit­ unum verði síður nýtt. Bóndi sem býr með golfvöll er sveit­ inni mikils virði ekkert síður en sá sem býr með sauðfé og báðir hagnast á breyttu fyrirkomulagi. Sá sem rekur golfvöllinn hefur af því tekjur og sauðfjárbóndinn getur því framleitt meira. Við í Bjartri framtíð viljum skoða hlutina í nýju ljósi. Stjórnvöld eiga að styðja við nýjar hugmyndir, framtak og kjark. Lítil breyting með fjöl­ breytni að leiðarljósi getur skapað ný tækifæri án þess að ógna því sem fyrir er. Árni Múli Jónasson og G. Valdimar Valdemarsson. Höfundar eru í 1. og 2. sæti á lista Bjartrar framtíðar í NV-kjördæmi. Björt framtíð í sveitum og þorpum

x

Bæjarblaðið Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.