Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 30.05.2013, Blaðsíða 2

Bæjarblaðið Jökull - 30.05.2013, Blaðsíða 2
Undanfarna daga hefur verið hér á ferðinni þýsk fjölskylda sem tekur upp hina ýmsu heimildarþætti fyrir sjónvarp og selur sjónvarpsstöðvum til sýninga í Þýskalandi. Þetta eru þau Tom Mandi sem sér um kvikmyndatökurnar og Astrid Güldner er upptökustjórinn og dóttir þeirra Lena sem ásamt því að sjá um hljóðið hjálpar þeim við það sem þarf. Komu þau hingað í þeim tilgangi að gera mynd um þýska lista mann­ inn Peter Lang og einnig um Veronicu Osterhammer. Hefur sjónvarpsfólkið fylgt Veronicu og fjölskyldu hennar eftir við dagleg störf bæði á Brimils­ völlum þar sem hún rekur Brim­ hesta ásamt manni sínum Gunnari Tryggvasyni og með Kirkju kór Ólafsvíkur. Þótti þeim t.d. mikið til hestamanna mess­ unnar koma sem fram fór í Brimils vallakirkju. Þessir þættir verða svo að öllum líkindum sýndir í þýska ríkissjónvarpinu í sumar. Það er ekki á hverjum degi sem Snæfellsnesið fær svona glæsilega landkynningu sem þættir af þessu tagi eru. En þau Tom Mandi og Astrid Güld­ ner eru mjög virt í heimalandi sínu. þa Á dögunum kom flutninga­ skipið Svanur með rör í nýju þrýstipípuna fyrir Rjúkanda­ virkjun. Fram undan eru fram­ kvæmdir þar sem skipt verður um þessa 1450 metra löngu pípu. Við uppskipunina var notaður kranabíll frá Þorgeiri ehf. Til baka tók skipið á annað hundrað tonn af úrgangssalti frá Fiskverkuninni Valafelli. þa Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og dreift á hvert heimili í Snæfellsbæ og Grundarfirði. Blaðið kemur út vikulega. Upplag: 1.100 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími: 436 1617 Tóku upp sjónvarpsefni Rörum skipað á land Til sölu Brautarholt 3, Ólafsvík 175,1 fm. einbýlishús á tveimur hæðum byggt árið 1958 ásamt 56 fm. bílskúr byggðum árið 1975. Efri hæð skiptist í forstofu, hol, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og tvær samliggjandi stofur Neðri hæð skiptist í forstofu, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, tvær geymslur og þvottahús. Húsið hefur nánast allt verið endurnýjað bæði að utan og innan og lýtur mjög vel út. Bílskúr hefur einnig verið endurnýjaður bæði að innan og utan. Húsinu mætti auðveldlega skipta í tvær íbúðir. Óskað er eftir tilboðum í húsið. Grundargata 4, Grundarfirði 95 m2 neðri hæð í tvíbýlishúsi. Flísalögð forstofa með fatahengi. Þar inn af er stórt sameiginlegt þvottahús með stiga upp í efri íbúð. Stórt hol, eldhús, borðkrókur og stofa voru lögð með parketi 1998. Baðherbergi var gert upp 1999. Stórt eldhús og borðkrókur, allt endurnýjað 1998, falleg eldhúsinnrétting, gegnheil eik, mikið skápapláss. Parketlagt hjónaher- bergi. Stórt herbergi með nýlegu parketi. Lítið barnaherbergi lagt nýlegu parketi. Íbúðin var mikið uppgerð 1998 og 1999. Skipt var um þak 2004. Auðveld yrtaka á ÍLS lánum. Greiðslubyrði lána 55 þús. Upplýsingar í síma 893 3084 Guðlaugur eða Óttar

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.