Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 30.05.2013, Page 9

Bæjarblaðið Jökull - 30.05.2013, Page 9
     Námskeið  fyrir     Svæðisleiðsögumenn.     Ferðaskrifstofan  Þemaferðir  ehf.  í  Grundarfirði  stendur  fyrir  námskeiði     fyrir  Svæðisleiðsögumenn  dagana  3-­‐8  júní  n.k.     Námskeiðið  verður  í  Grundarfirði  og  er  frá  20-­‐22:30  þessa  daga,  nema   laugardaginn  8.  Júní  þá  fer  mestallur  dagurinn  í  prófverkefni.     Auk  þess  er  nokkuð  um  heimaverkefni.   Góð  enskukunnátta    nauðsynleg  og  fleiri  mál  gefa  meiri  möguleika  á   vinnu.   Verð  kr.  14.000.-­‐   Innifalið  auk  kennslu,  eru  öll    kennslugögn  og   prófferð  í  kring  um  Snæfellsnesið.   Nánari  upplýsingar  og  skráning  hjá  Þemaferðum  Neveg  5  Grundarfirði   símar  438  1375  og  864  2419  eða  á  netfangi      oli@themaferdi.is     Ferðaskrifstofan  Þemaferðir  ehf.   Nesveg  5  Grundarfirði  símae  438  1375  og  864  219   Í samstarfi við Evrópu unga fólksins fékk skátafélagið Örn­ inn á Grundarfirði hingað til Íslands skáta frá Þýskalandi í samvinnuverkefnið Mi Mundo Returns to Iceland. Þetta var í svokölluðum ungmenna skipt­ um þar sem Þjóðverjunum var gefinn kostur á að upplifa land og þjóð með fjölbreyttri dag­ skrá og félagsskap. Skátafélögin kynntust á litlu skátamóti úti í Þýskalandi sumarið 2012 og strax í kjölfarið var ráðist í að bjóða þeim hingað til lands. Erlendu skátarnir komu hing­ að sl. páska og eyddu hér rúmri viku í m.a. að skoða höfuð borgina og upplifðu Ís ­ land á sinn einstaka hátt. Mikill undirbúningur var við ferðina og þ.á m. komu tveir fulltrúar þýska hópsins hingað til lands í undirbúningsheimsókn Dagskráin var af ýmsum toga, bæði í höfuðborginni og seinni part vikunnar á Snæ­ fellsnesi. Þar voru umræðu­ hópar um ýmis málefni, ýmis konar hópefling, kynningar um náttúruvernd og samfélags­ vinna. Farið var í hvalaskoðun, ratleik, í sund og margt fleira. Einnig var mikið lagt upp úr því að deila menningu land­ anna, þ.á m. í eldamennsku og ýmsum siðum eins og páska­ eggja leit. Áætlað er að halda samstarfinu áfram og e.t.v. er möguleiki á öðrum ungmenna­ skiptum frá Íslandi til Þýska­ lands þar sem þessi ferð tókst með eindæmum vel. Allir þáttakendur voru mjög ánægðir með ferðina og sam­ starfið í heild sinni og viljum við þakka öllum sem tóku þátt eða hjálpuðu til við verkefnið og þá sérstaklega minnast á Evrópu unga fólksins og benda á ef önnur ungmenni hafa á ­ huga á að taka þátt í svipuðum eða gjörólíkum verkefnum eru þau hvött til að leita til þeirra. Myndina tók Sebastian Aus Lönneberga. Evrópa Ungafólksins

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.