Morgunblaðið - 01.07.2005, Síða 12
12 C FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2005
MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Morqunblaðið/Eyþór
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borqarstjóri tók við iyklum nýja metan-
sorpbílsins og setti í gang.
Tíu bilar sjá um sorphirðu fyrir Reykvíkinga og er einn þeirra nú knúinn
metani sem framleitt er í Álfsnesi.
Fyrsti metanbíllinn
í sorphirðuna
METANKNÚINN sorpbíll er nú
kominn í þjónustu Reykjavíkur-
borgar en Steinunn Valdís Óskars-
dóttir borgarstjóri tók við lykl-
unum í vikunni. Bíllinn er af
qerðinni Mercedes-Benz og segir
Guðmundur B. Friðriksson, skrif-
stofustjóri neyslu- og úrgangs-
mála hjá borginni, að með þessum
bíl sé tekin sú stefna að sorpbíla-
flotinn verði smám saman knúinn
metani.
Bíllinn er fluttur inn af Öskju
ehf., sem hefur umboð fyrir bífa frá
DaimlerChrysler, framleiðanda
Mercedes-Benz-bíla. Vélamiðstöð
ehf. kaupir bílinn og leigir hann um-
hverfissviði Reykjavíkurborgar.
Verðið er kringum 17,5 milljónir
króna og segir Hersir Oddsson,
framkvæmdastjóri Vélamið-
stöðvar, að það sé um 3,5 millj-
ónum hærra en verðið á hefð-
bundnum dísilknúnum bíl. Bíllinn er
18 tonna og með 280 hestafla vél.
Hann er á loftfjaðrandi öxlum og
búinn myndavél að aftan sem eyk-
ur öryggi við vinnu við bflinn og
Hersir segir sérstaklega hafa verið
til þess tekið hversu gott útsýni sé
úrsæti ökumanns.
í fréttatilkynningu frá um-
hverfissviði borgarinnar, Vélamið-
stöð og Öskju segir að sorpbílar
sem gangi fyrir metani valdi um
80% minni sótmengun en hefð-
bundnir dísilbílar og að útblástur á
köfnunarefnisoxíðum sé um 60%
minni. Þá segir að vél knúin metani
sé hljóðlátari en dísilvél.
Metanið er framleitt úr sorpi
borgarbúa í Álfsnesi og má í raun
seqja að bíllinn sé sjálfbær þar sem
hann flytji úrgang sem síðar verði
að eldsneyti sem hann gengur fyr-
ir. Áfyiling fer fram á stöð Olíufé-
lagsins við Bíldshöfða.
Tíu sorpbílar sinna sorphirðu á
vegum borgarinnar og eru 4-6
menn í vinnuflokki meö hverjum
bíl. Nýi bíllinn tekur þó aðeins þrjá
menn auk bflstjóra.
Tugir bíla og atvinnutækja á Samgönguminjasafni Skagafjarðar
Á útisvæði safnsins eru heyvinnuvélar, rútur og vörubílar og nokkrir bílar sem bíða laqfæringar.
Mikil saga varðveitt
í bílum og tækjum
Gunnar Þórðarson hefur komið upp myndarlegu safni fólksbíla, vörubíla og
tækja í rúmgóðum sýningarsal á Stóragerði í Skagafirði.
Tugir bíla af margs konar
gerðum ásamt nokkrum
dráttarvélum og ýmsum
öðrum landbúnaðartækj-
um eru sýnd á Samgöngu-
minjasafni Skagafjarðar sem Gunn-
ar Þórðarson hefur komið upp af
miklum krafti. Safnið er til húsa að
bænum Stóragerði, skammt sunnan
Hofsóss og ekki langt norðan við
Hóla.
Hann á sjálfur flesta bflana en
faðir hans nokkra og er aldur
þeirra, þ.e. bflanna, allt frá fáum
áratugum upp í nánast forngripi.
Gunnar kveðst lengi hafa haft
áhuga á bílum, ekki síst gömlum og
hefur hann á síðustu árum safnað að
sér bílum í mjög svo misjöfnu ásig-
komulagi. I flestum tilvikum hefur
hann keypt en svo hefur honum
áskotnast einstaka bfll.
Safnið er í rúmgóðri skemmu þar
sem vel yfir 20 bflar komast fyrir.
Nokkrir bíða lagfæringar
Þegar Gunnar var heimsóttur á
dögunum, skömmu eftir opnun 17.
júní, var hann ekki búinn að koma
öllum bílunum fyrir sem hann
hyggst sýna innan dyra.
A útisvæði eru síðan allmargir
aðrir bflar, m.a. mjólkurbfll, nokkrir
vörubílar sem hann ætlar að lag-
færa svolítið án þess að gera þá upp
frá grunni, jeppar og fólksbflar.
Er nokkuð augljóst að hann verð-
ur ekki beint verkefnalaus næstu
árin ef gera á þennan flota allan
upp.
Bílana hefur hann fengið víðs
vegar af landinu, marga frá Norður-
landi en nokkra austan af landi og
víðar.
„Það er misjafnlega mikil vinna í
að gera upp þessa bfla og stundum
þarf ég að verða mér úti um tvö til
þrjú hræ til að eiga nóg til að gera
upp einn bfl,“ segir Gunnar en hann
fæst mest við verkið að vetrinum
en einnig mikið um helgar allt árið.
Bílana drífur að Gunnari hraðar en hann fái gert þá upp og
lagfært áður en þeir fá að fara inn í safn.
Þessi Willys kom fyrst til landsins á leyfi til bónda en
eigandi hans nú er Þórður Eyjólfsson, faðir Gunnars.
BÍLLINN
OO0O
• • GULALINAN
AJES-VARAHLUTIR ehf.
Varahlutir fyrlr-^ Evrópu- og Asíubíla Varahlutir - betri vara - betra verð
Ibílasprautun og RÉTTINGAR] AUÐUNS M
-
Bíldshöfða 18, 110 RVK* Sr 567 6020 • Opið: 8-18 ab@abvarahlutir.is • www.abvarahlutir.is-” - ^ TOYOTA-fefónus ta e Gæðavottað verkstæði af Bílgreinasambandinu
BlLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR j/t Hurðir /'j* Eldvarnar- til á lager -* | L hurðir ^^J^GLOFAXI chf. örV99hi- e Bílaleigubfll á meðan viðgerð stendur .,, . e Fullkomin réttingarbekkur og mælitæki i :j j ;JÉtíF k Réttum og málum allar tegundir bíla
1)A 1/ O'í'ís\i) \Jjí J'íJ-É1) J
Nýbýlavegi 10 • Kópavogi • Sími 554 2510 www.bilasprautun.is • bilasprautun@bilasprautun.is
v #m ö
•trimöavttifSfAm
DRAGHÁLSI 8
110 RVK
SÍMl 567 0690
GSM 891 7424
M , FAX 567 0691
Tjónaskoöun Bilaleiga
tjon@tjon.is
'iros.'vo OAOMrtu ClTROÉN www.tjon.is
ÓDÝR NOTUÐ OG NÝ
einnig 16", 17” og 18" low-profil dekk