Sjálfsbjargarfréttir - 01.01.1985, Page 2
Ágæti Sjálfsbjargarfélagi.
Stjórn Sjálfsbjargar, félags fatlaóra í Reykjavik og nágrenni,
óskar ykkur og fjölskyldum ykkar farsældar á nýbyrjuðu ári
og þakkar samstarf og samvinnu á liðnum árum.
Nú hefjum við félagsstarfið i nýstandsettu Félagsheimili og
væntum þess að það verði mikið notað og að sem flestir taki
þátt i starfseminni.
Við byrjum 1. febrúar n.k. með „Opnu húsi" i Félagsheimilinu
og það verður Æskulýðsnefndin sem sér um dagskrána.
Félagsfundur verður svo 16. febrúar n.k. og verður fjallað
um efnið: Húsnæðismál.
Þetta málefni snertir alla.
Að búa i tryggu húsnæði er eitt af frumskilyrðum þess að
geta lifað eðlilegu lifi. Aó eignast eigió ibúóarhúsnæói,
er ekki öllum kleift. Sá aðstöðumunur hjá þeim, sem geta
unnið sjálfir við byggingu eigin húsnæðis og hinna sem
ekki geta það, er mikill og reyndar vióurkenndur af öllum.
En hefur „Kerfið" tekið nægjanlega tillit til þess?
Fulltrúar frá Húsnæðismálastjórn, stjórn Verkamannabústaða,
Húsnæðissamvinnufélaginu Búseti og Byggingasamvinnufélagi
Ungs fólks i Reykjavik (Byggung), fjalla um húsnæðismál
með tilliti til fatlaðra. Einnig mætir á fundinn fulltrúi
frá Bygginganefnd Reykjavikurborgar ogfjallar um árangur
af framkvæmd þess, aó sérstaklega skuli tekið tillit til
aðgengis vió hönnun bygginga.
Fyrirspurnir og umræður verða að loknum framsöguræðum.
„Opið hús'' veröur svo aftur á dagskrá 1. mars og þá láta
konur i Basarnefndinni ljós sitt skina og sjá um dagskrána.
Árshátið félagsins verður 15. mars og eru allir félagar
hvattir til þess aó mæta.
Aðalfundur félagsins verður 30. mars n.k. og væntum við
þess aö sjá sem flesta félaga og styrktarfélaga.
Siðasta „Opna húsið" veróur svo 26. april n.k. og mun þá
stjórn félagsins sjá um dagskrána.
Með þessari tilhögun, aó skiptast á að sjá um „Opið hús",
væntum við þess að þetta verði skeramtileg kvöld og vonum
að félagar fjölmenni.
Nokkur námskeið eru fyrirhuguð og eru prjóna- föndur og
félagsmálanámskeið þegar ákveðin. Námskeiðin eru kynnt
sérstaklega á öðrum stað i Fréttabréfinu.
Ég minni á skrifstofu félagsins. Þangað geta félagar og
aðstandendur þeirra leitað og fengió upplýsingar og
aðstoð i hinum ýmsu málum, er varða fatláða.
Einnig minni ég sérstaklega á eyðublöð varðandi atvinnu-
mál fatlaðra sem er á baksiðu fréttabréfsins.
Sjálfsbjargarfélagar.
Takió þátt i starfi félagsins.