Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2004, Qupperneq 3

Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2004, Qupperneq 3
Formannspistill: Takk kæru félagsmenn Grétar Pétur Geirsson, formaður Sjálfsbjargar, félags fatlaðs fólks á höfuðborgarsvœðinu, skrifar. „Það er nefnd á vegum félagsins sem er að vinna að hugmyndum um nýjungar í starfinu og hvet ég fé- lagsmenn ef þeir eru með einhverjar hugmyndir að koma þeim á framfæri við skrifstofuna eða senda net- póst á gretarp@sjalfsbjorg.is" Nú er félagsstarfið að fara aftur á fullt hjá okkur eftir sumarleyfi og vona ég að þið hafið haft það gott í sumar, sem var einstakt veðurfarslega séð. Þeir sem hafa komið í Krika við Elliðavatn í sumar hafa getað notið veðurblíðunnar og umhverfisins á þessum fallega stað. Þetta er annað sumarið í röð sem Kristín R. Magn- úsdóttir hefur gert okkur kleift að hafa Krika opinn fyrir félagsmenn. Einnig höfum við notið dyggrar að- stoðar Guðbjargar Höllu, Hönnu Margrétar og Jónu Marvins ásamt fleirum. Félagið færir þeim bestu þakkir fyrir þeirra störf. Krikahátíð Krikahátíðin var haldin um verslun- armannahelgina. Milli 50 til 60 manns mættu sem verður að teljast nokkuð gott. A laugardeginum var grillað og sáu bræðurnir Örn og Hannes Sigurðssynir um að grilla ofan í fólkið með aðstoð Tryggva Garðarssonar og tókst það mjög vel. Síðan var tekið lagið við gítarundir- leik. A sunnudeginum var boðið upp á kakó og vöfflur. Þess má geta að í sumar hafa 760 manns skráð sig í dagbókina í Krika sem er frábært og sýnir þörfina á því að hafa húsið opið yfir sumartímann. Vetrarstarfið Vetrarstarfið verður með svipuðum hætti í vetur. Þó er ein breyting, séra Bjarni Karlsson sóknarprestur í Laugarneskirkju mun vera með guðsþjónustu á vegum kirkjunnar annan hvern sunnudag í félagsheim- ili Sjálfsbjargar. Síðan verður reynt að vera með einhverjar nýjungar fyrir utan hefðbundna félagsstarfið. Það er nefnd á vegum félagsins sem er að vinna að hugmyndum um nýj- ungar í starfinu og hvet ég félags- menn ef þeir eru með einhverjar hugmyndir að koma þeim á fram- færi við skrifstofuna eða senda net- póst á gretarp@sjalfsbjorg.is. Ég hvet alla sem þekkja okkar félags- starf og hafa nýtt sér það að hvetja aðra sem þeir telja að hafi þörf fyrir svona félagsskap til að mæta. Þakkir Að lokum vil ég nota tækifærið og þakka þeim félagsmönnum sem hafa lagt hönd á plóginn félaginu til handa á því ári sem er senn á enda með óeigingjörnu starfi. Sérstakar þakkir fá Sigurður Pálsson, Tryggvi Garðarsson, Kristín R. Magnúsdótt- ir, Helga Jónsdóttir, Guðbjartur Har- aldsson og Gréta Guðlaugsdóttir fyrir mikil og vel unnin störf í þágu félagsins. Sjálfsbjörg Abgengi fyrir alla 3

x

Sjálfsbjargarfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjargarfréttir
https://timarit.is/publication/1896

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.