Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2004, Qupperneq 6

Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2004, Qupperneq 6
 -segir Guöbjörg Kristín Eiríksdóttir, félagi í Sjálfsbjörg, sem er flutt heim eftir 11 ára dvöl erlendis. Fjölskyldan samankomin. Guðbjörg ásamt eiginmanni sínum, Dirk Lubker, sem hún kynntist í Þýskalandi, og syni þeirra Markúsi Svavari, sem er átta ára. Mynd/úr einkasafni. Guðbjörg Kristín Eirfksdóttir var kosin í stjórn NHF, Nordisk Handikap Forbund, á þingi Sjálfsbjargar lsf. s.l. vor. Þar mun málakunnátta hennar eflaust koma að góðum notum, en hún talar alls fimm tungumál auk móðurmálsins. Guðbjörg fékk liðagigt ung að árum og hefur verið öryrki frá 16 ára aldri. Hún hefur búið erlend- is s.l. 11 ár, fyrst í Þýskalandi þar sem hún var við nám og síðan í Noregi. Blaðamaður Sjálfsbjargarfrétta mælti sér mót við Guðbjörgu á heimili hennar í Hafnarfirði fyrir skömmu til að fræðast nánar um hana sjálfa, dvöl hennar erlendis og ýmislegt fleira. Guðbjörg, eða Didda eins og hún er kölluð af mörgum, hefur verið félagi í Sjálfsbjörg frá árinu 1977. Hún fékk alvarlega sýkingu út frá háls- kirtlunum fjögurra ára gömul og í kjölfarið fékk hún liðverki. „Það var ekki hægt að taka hálskirtlana strax því ég var með svo mikið af bakterí- um í blóðinu. Það var ekki gert fyrr en tveimur árum síðar og þá fóru einkennin af gigtinni. Sjúkdómur- inn tók sig síðan aftur upp þegar ég var 11 ára. Það var mjög erfitt tíma- bil vegna þess að á þeim tíma bjó ég með foreldrum mínum og tveimur systrum í Lúxemborg, þar sem ég er hálfpartinn alinn upp. Ég var send til íslands á spítala, vegna þess að þeir gátu ekkert hjálpað mér í Lúx- emborg. Jón Þorsteinsson gigtar- læknir, sem nú er reyndar hættur störfum, var minn bjargvættur, ef svo má segja Hann kom mér í jafn- vægi með lyfjagjöf og hvíld og ég fór síðan aftur út. Þegar ég varð 13 ára var ég mjög veik og það var aft- ur farið með mig heim. Fjölskyldan mín IJutti heim til íslands árið 1972. I dag er sjálf barnaliðagigtin ekki mjög virk, en aðrið gigtarsjúkdómar hafa bæst við, m.a. svonefnd Sjög- rens heilkenni, sem valda augn- og munnþurrki. Slíkt getur gerst þegar fólk hefur haft gigt í áratugi, eins og ég. Stærsta bótin sem ég hef fengið á fötlun minni voru mjaðmaskipta- aðgerðir sem ég fór í 1984. Gat ég þá hætt á öllum gigtarlyfjum þangað til fyrir sjö árum síðan, þegar þriðja og tjórða tegundin af gigtarsjúk- dómum bættust við. En ég er aftur komin í þokkalegt jafnvægi með að- stoð svokallaðra ónæmisbælandi lytja.“ Fékk æxli við heila Guðbjörg var þó ekki búin að fá sinn skerf af sjúkdómum, vegna þess að 6

x

Sjálfsbjargarfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjargarfréttir
https://timarit.is/publication/1896

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.