Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2004, Síða 9

Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2004, Síða 9
fékk síðan vinnu hjá Actavis þar sem hann vinnur núna. Okkur líður mjög vel hérna og erum alsæl.“ Persónulegri þjónusta Guðbjörg segir lítið þjóðfélag eins og Island hafa marga góða kosti. „Ef ég þarf á læknisþjónustu að halda vil ég helst vera undir hand- leiðslu íslenskra lækna. Mér finnst þjónustan hér á landi vera svo per- sónuleg og það er mjög jákvætt. I Noregi og Þýskalandi fannst mér ég bara vera eitthvað númer í kerfinu. Maður kemst einnig fyrr að hér heima hvað læknisþjónustu varðar. Eitt sem ég er reyndar mjög ósátt við er sjúkrakostnaður sjúklinga. Um daginn átti ég t.d. að fara í aðgerð á einkastofu og hefði hún kostað mig um 18 þúsund krónur. Vegna heislu minnar varð ekki hjá því kornist að framkvæma aðgerðina á spítala og kostaði hún mig þess vegna ekki neitt. Mér finnst kerl'ið hafa færst svo mikið í þessa átt og það er slæmt. Mér þykir einnig sárt að heyra þegar verið er að tala um sam- drátt og niðurskurð í heilbrigðiskerf- inu. Auðvitað þarf að hafa hemil á kostnaðinum, en því má ekki gleyma að Islendingar borga tiltölu- lega mikið í sjúkratryggingar í gegn- um skattkerfið.“ Guðbjörg er heimavinnandi. Hún segir það hafa verið samkomulag á milli þeirra hjóna að hún eyddi sín- um kröftum í heimilið. „Mér finnst ekki taka því að fara að vinna úti og eyða mínum kröftum í það. Eg er misjöfn eftir dögum og þarf að passa vel upp á sjálfa mig. Eg get t.d. ekki setið lengi við skrifborð vegna þess að þá bólgna ég á handleggjunum. Maðurinn minn hefur aldrei kvartað og myndi ekki gera það. Hann tek- ur mér eins og ég er og vissi alveg frá upphafi að ég væri með liðagigt. Eg einbeiti mér að heimilinu og uppeldi sonar okkar. Síðan hef ég mikinn áhuga á að starfa fyrir Sjálfs- björg, sem ég á svo mikið að þakka,“ segir Guðbjörg að lokum. Texti: Kristrún M. Heiðberg. Haukadalsskógur: Aðgengilegir skógarstígar Hreinn Óskarsson skógarvörður sagar trjágrein við vígsluathöfnina. Svanur Ingvarsson, formaður Sjálfsbjargar á Suðurlandi, fylgist með. Myndir/Margrét Isaksdóttir. að var margt um manninn þegar skógarstígar í Hauka- dalsskógi voru vígðir 19. september síðastliðinn. Hér er ekki um neina venjulega skóg- arstíga að ræða, því þeir eru sérhannaðir fyrir fólk í hjólastól. Skógarstígarnir eru auk þess góð- ur kostur fyrir foreldra og aðra sem vilja fara með krakka í kerr- um og barnavögnum, sem og allra þeirra sem eiga einhverra hluta vegna erfitt um gang. Skógarstígurinn er 1,2 km. á lengd og út frá honum er áningar- staður þar sem hægt er að grilla eða setjast að snæðingi. Fyrir þá sem ekki vita, þá er Haukadalsskógur rúman kíló- metra fyrir ofan Geysi í Haukadal. Skógarvörðurinn bauð upp á kaffi og Sjálfsbjörg í Arnessýslu sá um að griila. Að sjálfsögðu var svo sungið I tilefni dagsins. 9

x

Sjálfsbjargarfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjargarfréttir
https://timarit.is/publication/1896

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.