Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2004, Page 13

Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2004, Page 13
athygli á sér og sínu starfi. „Við stefnum að því að koma aftur saman næsta sumar og gera eitthvað fleira skemmtilegt. Að- gengismálin eru efst á baugi hjá okkur, sem og að bæta ímynd hreyfihamlaðra. Við fengum mjög góð viðbrögð við því sem við vorum að gera og okkur var alls staðar vel tekið. Við lögðum áherslu á að vera jákvæð og leita leiða í stað þess að kvarta og kveina. A þann hátt teljum við að náist betri árangur.“ -kmh. ismál fatlaðra, sem er svo til tilbúin. Við erum einmitt að fara að ræða við sjónvarpsstöðvarnar um að þær sýni myndina. Hún er um hálftíma á lengd og er alfarið gerð af okkur sjálfum. Við erurn ánægð með út- komuna og vonurn að myndin eigi eftir að fá góðar viðtökur.“ Hæfileikaríkur hópur Að sögn Fannars Arnar er lögð mik- il áhersla á að krakkarnir í Götu- hernaðinum geri flesta hlutina sjálf- ir. „ Götuhernaðurinn er sambland af ungu fólki úr ýmsum áttum. Við viljum vera skapandi og gera hlut- ina sjálf. Við erum mörg hver búin að vera á fjölmiðlabraut, þar sem kvikmyndagerð, grafík, blaða- mennska og fjöhnargt fleira er tekið fyrir Við erum fjölbreyttur hópur, með hæfileika á ýmsum sviðum og þegar því er blandað saman þá er allt hægt. Okkur finnst einmitt mjög spennandi að geta nýtt það sem við höfum lært og að fást við það á okk- ar eigin forsendum.“ Ungt fólk vill hafa vai Fannar Örn er á félagsmálabraut í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Hann var áður á fjölmiðlabraut, sem hann segir hafa verið mjög spenn- andi. „Ég ákvað þó að breyta til og fara á félagsfræðibraut til að opna fleiri möguleika. Nám í dag er mun opnara og fjölbreyttara en áður. Hér áður fyrr einblíndi fólk á eitthvað eitt svið en í dag borgar sig að hafa fjölbreytt nám að baki. Ungt fólk í dag ákveður ekki einn daginn hvað það ætlar að gera það sem eftir er ævinnar. Það vill hafa sem flesta möguleika opna og geta valið.“ Aðspurður hvað honurn hafi þótt mest spennandi við sumarstarfið, -segir Fannar Örn það hafa verið hönnun auglýsinga og plakata sem Götuhemaðurinn notaði til að vekja „Við erum fjölbreyttur hópur, með hæfileika á ýmsum sviðum og þegar því er blandað saman þá er allt hægt/' Krakkarnir stóðu m.a. fyrir knattspyrnuleik þar sem þeir léku gegn Stjörnuliði KSI, sem skipað var þekktum núverandi og fyrrverandi knattspyrnumönnum. Stjörnuliðið notaðist við ýmis hjálpartœki, s.s. hjólastóla og hœkjur. Leikurinn fór á þann veg að Stjörnuliðið steinlá fyrir Götuhernaðinum, 1-9. „Við lögðum áherslu á að vera jákvæð og leita leiöa í stað þess að kvarta og kveina. Á þann hátt teljum við að náist betri árangur." Krakkarnir gerðu m.a. heimildarmynd um aðgengismál fatlaðra. Peir œtla að rœða við sjónvarpsstöðvarnar um sýningar á myndinni. 13

x

Sjálfsbjargarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjargarfréttir
https://timarit.is/publication/1896

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.