Bæjarblaðið Jökull - 13.12.2018, Side 1
Jólaútvarp GSNB fór í loftið
í þriðja skiptið á mánu dags
morgun inn og stóð yfir í fjóra
daga. Var þetta í þriðja skiptið sem
jóla útvarpið var hjá skól anum.
Eins og áður sendu allir bekkir
út bekkjarþætti ásamt því að
nemendur af unglingastigi gerðu
þætti um sín áhugamál svo sem
tónlistarmenn eða spiluðu uppá
haldstónlistina sína. Í tilefni af
fullveldisafmælinu voru efnistök
bekkjarþáttanna lituð af því og
fjölluðu í þáttunum um „sína
áratugi“ og spiluðu einnig líka
tónlist frá þeim tíma.
Það var Theódóra Frið björns
dóttir kennari sem hélt utan um
jóla útvarpið að þessu sinni en
hún hefur verið með fjölmiðlaval
á unglinga stigi í haust. Stóð
undir búningur fyrir útvarpið frá
því í nóvember í mjög góðu sam
starfi við nemendaráð skólans
sem hélt utan um auglýsingarnar.
Var krökkunum skipt upp í þrjú
upptökuteymi og auglýsingagerð.
Krakkarnir sem sáu um aug
lýsingar voru í sambandi við
fyrirtæki og sáu svo um að semja
og lesa texta auglýsinganna. Gekk
öll undirbúningsvinna mjög vel
og gekk teymunum vel að skipta
með sér verkum. Einnig tókust
upptökur á þáttunum mjög vel
undir styrkri handleiðslu Þrastar
Kristóferssonar tölvu umsjónar
manns ásamt því að hann
aðstoðaði teymin í útsendingu
við það sem þurfti.
Útvarpsstjóri að þessu sinni var
Jason Jens Illugason, nemandi í
10. bekk og formaður nemenda
ráðs. Stóð hann sig sérlega vel
ásamt öllum öðrum sem komu
að útvarpinu. Eiga þau að vera
mjög stolt af vinnu sinni við
þetta verkefni enda heppanðist
útvarpið mjög vel.
Dagskráin var mjög fjölbreytt og
ekki voru eingöngu bekkjarþættir
og þættir nemenda á unglingastigi
á dagskránni. Segja má að allt
samfélagið hafi tekið þátt í
útvarpinu því fluttir voru þættir
frá leikskólunum, Smiðjunni,
Skólakór Snæfellsbæjar svo og
Jakob Þorsteinssyni fyrrverandi
nemanda skólans. Þess má einnig
geta að í útvarpsþáttunum voru
tekin viðtöl við nokkra bæjarbúa
og voru þau mjög áhugaverð og
skemmtileg.
Grunnskóli Snæfellsbæjar má
vera mjög stoltur af þessu frábæra
verkefni sem jólaútvarpið er,
greinilegt er að mikil vinna liggur
að baki útvarpssendingunum og
hafa allir lagt sig fram um að gera
það sem best úr garði.
þa
857. tbl - 18. árg. 13. desember 2018
Nemendur senda út jólaútvarp
- Bílaviðgerðir
- Skipaþjónusta
- Almenn suðuvinna
- Smurþjónusta
- Smábátaþjónusta
- Dekkjaverkstæði
vegr@vegr.is vegr.is
S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Útgáfa Jökuls
á næstunni
Jólablað Jökuls kemur út mmtudaginn 20. desember
og eru skil á efni og auglýsingum fyrir kl. 16
föstudaginn 14. desember.
Jökull kemur ekki út á milli jóla og nýárs.
Fyrsta blað á nýju ári kemur út
mmtudaginn 10. janúar