Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 13.12.2018, Qupperneq 4

Bæjarblaðið Jökull - 13.12.2018, Qupperneq 4
Eyþór Ingi Gunnlaugsson stór­ söngvari með meiru hélt hátíðar­ tónleika í Félagsheimilinu Klifi 6. desember síðastliðinn. Tón leik­ arnir voru hluti af tónleikaröð Eyþórs Inga á aðventunni en hún hófst á Húsavík fyrsta sunnudag í að ventu. Á tónleikunum kom Eyþór Ingi einn fram og spilaði sjálfur undir, ýmist á gítar eða flygilinn og sérstakir gestir á tón leik unum var Karlakórinn Kári. Á milli laga spjallaði Eyþór við tón leika gesti og myndaðist því létt og ljúf jólastemning. Eyþór Ingi hefur getið sér gott orð sem eftir herma og brá hann sér í líki nokkurra landsþekktra ein staklinga við mikla kátínu tón­ leika gesta en nánast var uppselt á tón leikana. þa Eyþór Ingi með tónleika í Klifi laugardagurinn 9. feb. 2019 Takið daginn frá Þorrablót í Röst Störf í boði Fiskmarkaður Íslands leitar að fólki til vertíðarstarfa í okkunar- og slægingarstöð Ri. Um ræðir vertíðarvinnu frá 15. janúar til 31. maí. Mikil vinna í boði. Einnig leitum við af vönum lyftaramanni í heils árs starf á sömu starfsstöð. Fyrir áhugasama hað samband við: Reynir Guðjónsson, reynirg@fmis.is, 840-3725 eða Smára Björgvinsson, smari@fmis.is, 840-3715 17. nóvember síðastliðinn í Átt haga stofu Snæfellsbæjar var boðið upp á blóðsykursmælingu ásamt blóðþrýstings­ og bein­ þéttnimælingu, var þetta gert í tilefni af því að alþjóðadagur sykursjúkra var 14. nóvember. Vilja eftirtaldir klúbbar þakka öllum þeim sem sáu sér fært að mæta. Lionsklúbbur Ólafsvíkur Lionsklúbbur Nesþinga Lionsklúbburinn Rán Lionsklúbburinn Þernan Soroptimistaklúbbur Snæfellsness Þakkir

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.