Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 13.12.2018, Qupperneq 6

Bæjarblaðið Jökull - 13.12.2018, Qupperneq 6
S: 438-6933 - kbbilav@simnet.is - Sólvellir 5 - Grundarörður Opnunartími 8-12 og 13-17 - Verið velkomin • Almennar bílaviðgerðir • Smurþjónusta • Dekkjaskipti og viðgerðir • Rúðuskipti • Stjörnu viðgerðir á framrúðu • Tölvulestur Aðventuhátíðin í Ingjalds hóls­ kirkju var haldin síðasta sunnu­ dag sem var annar sunnu dagur í aðventu. Kirkjukór Ingjalds­ hólskirkju stóð fyrir hátíðinni að venju en hefð er fyrir því að kórinn sjái um hana. Þorbjörg Alexanders dóttir bauð gesti vel­ komna og kynnti dagskránna sem hófst á því að kirkjukórinn söng lagði Klukkur um jól. Gunnar Bent Arason kveikti á kertunum tveimur á aðventukransinum á meðan sungin voru tvö fyrstu erindin í Kveikjum einu kerti á. Hrafnhildur Óskarsdóttir flutti ljúfa hugvekju og þær Kristín Sigurbjörg Karlsdóttir og Margrét Þorláksdóttir fluttu ljóð. Kvenna hópur kirkjukórsins söng einnig tvö lög og Karlahópur kirkju kórsins einnig. Arnheiður Matthías dóttir las jólasögu með fallegum boðskap, Sr Óskar Ingi Óskars son sóknarprestur flutti guð spjall og bæn. Kirkjukórinn söng nokkur falleg jólalög og hátíðinni lauk með samsöng. Að henni lokinni bauð kórinn gestum niður í súkkulaði og smákökur. Var stundin í kirkjunni mjög ljúf og falleg og þeir gestir sem á hana mættu fóru með jólatemningu í hjarta út í kalt en fallegt kvöldið að henni lokinni. þa Aðventu fagnað á Ingjaldshóli Nú þegar styttist í jólin eru einhverjir bátar komnir í jólafrí og styttist líklega hjá flestum. Dagana 3. til 9. desember komu alls 767 tonn á land í höfnum Snæfellsbæjar í 76 löndunum. 348 tonn í 29 löndunum í Rifs­ höfn, 333 tonn í 36 í löndunum í Ólafsvíkurhöfn og 86 tonn í 11 löndunum á Arnarstapa. Stóru línubátarnir lönduðu allir núna heima við og landaði Tjaldur SH 99 tonnum í 1, Rifsnes SH 55 tonnum í 1, Örvar SH 46 tonnum í 1 og Hamar SH 31 tonni í 1 löndun. Hjá litlu línubátunum landaði Tryggvi Eðvarðs SH 52 tonnum í 5, Stakkhamar SH 40 tonnum í 5, Særif SH 39 tonnum í 4, Brynja SH 25 tonnum í 4, Lilja SH 25 tonnum í 4, Kvika SH 24 tonnum í 5, Álfur SH 17 tonnum í 3, Sverrir SH 13 tonnum í 3, Kári SH 12 tonnum í 4, Rán SH 11 tonnum í 3 og Ingibjörg SH 6 tonnum í 2 löndunum. Hjá dragnótabátunum landaði Magnús SH 53 tonnum í 4, Ólafur Bjarnson SH 48 tonnum í 4, Guðmundur Jensson SH 40 tonnum í 2, Matthías SH 29 tonnum í 4, Gunnar Bjarnason SH 28 tonnum í 3, Saxhamar SH 28 tonnum í 2, Egill SH 25 tonnum í 3, Sveinbjörn Jakobsson SH 20 tonnum í 4 og Esjar SH 10 tonnum í 3 lönd unum. Bárður SH er á netum og landaði 1 tonni í 1 löndun. þa Aflabrögð Veittir verða atvinnuþróunar og nýsköpunarstyrkir, menningarstyrkir ásamt stofn- og rekstrarstyrkjum til menningarverkefna. Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, er að nna reglur og viðmið varðandi styrkveitingar. Umsóknarformið er á ssv.is og notast er við Íslykil til innskráningar. http://ssv.is/uppbyggingarsjodur-vesturlands/ Nánari upplýsingar í síma 433-2310 eða senda fyrirspurnir á netfang: uppbyggingarsjodur@ssv.is Frestur til að skila inn umsóknum rennur út á miðnætti 20. janúar 2019. AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM Í UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS SAMTÖK SVEITARFÉLAGA Á VESTURLANDI

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.