Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 31.01.2019, Blaðsíða 4

Bæjarblaðið Jökull - 31.01.2019, Blaðsíða 4
arionbanki.is Fyrsta og þriðja miðvikudag hvers mánaðar Arion banki mun bjóða viðskiptavinum að hitta þjónusturáðgjafa á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar fyrsta og þriðja miðvikudag hvers mánaðar. Á milli kl. 13 og 15 mun þjónusturáðgjafi aðstoða viðskiptavini bankans með almenna bankaþjónustu, fyrir utan afgreiðslu á seðlum eða mynt. Ráðgjafinn kynnir og aðstoðar með notkun á stafrænum þjónustulausnum bankans; netbanka, greiðslumat, útgjaldadreifingu, Arion appið, virkjun rafrænna skilríkja o.fl. Á milli kl. 15 og 16 verður ráðgjafi við hraðbanka Arion banka og aðstoðar við innlögn á reiðufé, úttekt á reiðufé, millifærslu og greiðslu reikninga, einnig reikninga þriðja aðila. Við bjóðum viðskiptavini Arion banka í Grundarfirði hjartanlega velkomna með von um góðar viðtökur! Bestu kveðjur, Starfsfólk Arion banka á Vesturlandi Viðvera þjónusturáðgjafa Arion banka í Grundarfirði Arion dagar – vor 2019 6. febrúar 20. febrúar 6. mars 20. mars 3. apríl 17. apríl 8. maí 22. maí kirkjanokkar.is Bænadagur að vetri Messa verður í Ingjaldshólskirkju á sunnudag kl. 14. Altarisganga. Að fornu fari verður sérstaklega beðið fyrir sjómönnum og farsælli vertíð. Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir skólaliða í 90% starf á starfstöðina í Ólafsvík. Vinnutíminn er frá kl 7:45 – 15:00. Starfsvið skólaliða • Annast frímínútnagæslu, aðstoðar, undirbýr og gengur frá eftir matar- og neyslutíma • Annast ræstingar, frágang og þrif • Ýmis önnur verkefni sem til falla hverju sinni Menntun, reynsla og hæfni: • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Góð kunnátta í íslensku er skilyrði Borgað er samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samflots bæjarstarfsmannafélags. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til 8. febrúar, umsóknareyðublað er á heimasíðu Snæfellsbæjar: https://snb.is/wp-content/uploads/2013/12/Atvinnuums%C3%B3kn.pdf Upplýsingar veitir Hilmar Már Arason, skólastjóri, í síma 894 9903 og umsóknir skal senda til skólastjóra hilmara@gsnb.is. Laus staða við Grunnskóla Snæfellsbæjar Íþróttafólk úr Snæfellsbæ lætur að sér kveða á mörgum stöðum í ýmsum íþróttum þessa dagana. Um síðustu helgi tók Marteinn Gíslason sem fæddur er í Ólafsvík þátt í Reykjavík International Games í rafíþróttum. Þar keppti hann ásamt liði sínu í tölvuleiknum League of Legends. Gerðu þeir sér lítið fyrir og unnu mótið en sigur á mótinu færði þeim þátttökurétt á Evrópumótinu Dreamhack sem fram fer í febrúar þar sem spilað verður á sviði. Óskum við Marteini og liðsfélögum hans innilega til hamingju með þennan flotta árangur en með Marteini á myndinni eru liðsfélagar hans. Frá vinstri: Mikael Dagur, Marteinn, Aron Gabríel, Nikola Remic, Thomas Samúel og Arnar Snæland. þa Enginn bátur landaði á Arnarstapa dagana 22. til 28. janúar en alls komu 1.078 tonn á land í Snæfellsbæ í 130 löndunum. Í Rifshöfn var landað 581 tonnum í 49 löndunum og 497 tonnum í 81 löndun í Ólafsvíkurhöfn. Hjá dragnótabátum landaði Rifsari SH 34 tonnum í 5, Egill SH 33 tonnum í 4, Guðmundur Jensson SH 28 tonnum í 4, Matthías SH 24 tonnum í 4, Sveinbjörn Jakobsson SH 16 tonnum í 4, Esjar SH 12 tonnum í 4, Gunnar Bjarnason SH 12 tonnum í 4 og Leynir SH 9 tonnum í 3 löndunum. Vel hefur einnig veiðst hjá línubátunum og landaði Kristinn SH 59 tonnum í 7, Stakkhamar SH 53 tonnum í 6, Gullhólmi SH 49 tonnum í 3, Tryggvi Eðvarðs SH 42 tonnum í 5, Lilja SH 38 tonnum í 5, Kvika SH 37 tonnum í 6, Særif SH 31 tonni í 4, Álfur SH 28 tonnum í 4, Bíldsey SH 28 tonnum í 5, Brynja SH 26 tonnum í 6, Signý HU 24 tonnum í 4, Sverrir SH 20 tonnum í 4, Kári SH 19 tonnum í 5, Rán SH 11 tonnum í 3 og Þerna SH 6 tonnum í 3 löndunum. Stóru línubátarnir lönduðu ýmist 1 eða 2 sinnum og landaði Tjaldur SH 105 tonnum í 2, Örvar SH 62 tonnum í 1, Hamar SH 56 tonnum í 2 og Rifsnes SH 41 tonni í 1 löndun. Fimm netabátar lönduðu þetta tímabil og landaði Bárður SH 63 tonnum í 7, Arnar II SH 41 tonni í 7, Ólafur Bjarnason SH 29 tonnum í 4, Saxhamar SH 23 tonnum í 3 og Magnús SH 19 tonnum í 1 löndun. þa Unnu mót í League of Legends Aflabrögð Skíðasvæði Snæfellsness er nú opið og áhugafólk um skíðaíþróttir því hvatt til að notafæra sér aðstöðuna, opið er virka daga kl. 15 ­ 18 en þó er settur sá fyrirvari að opnunartími fer eftir sjálfboðaliðum og veðri. Allt starf á skíðasvæðinu er unnið í sjálfboðavinnu og vilja þeir sem standa fyrir skíðasvæðinu koma því á framfæri að þau eru alltaf til í að bæta við sjálfboðaliðum í lyftuvörslu, þeir sem hafa áhuga geta haft samband í tölvupósti ski. snae@gmail.com. Verð í lyftuna er 500 kr fyrir krakka, 1000 kr fyrir fullorðna, frítt fyrir ellilífeyrisþega. Frítt á gönguskíðabrautina. Til að fá fréttir af opnunartímum og skíðafæri er best að fylgjast samfélagsmiðlum: facebook.com/skidadeildumfg/ instagram.com/ski.snae Skíðasvæði Snæfellsness er opið

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.