Bæjarblaðið Jökull - 31.01.2019, Side 7
Alicante - Alicante
Eigum laus tímabil í
íbúðinni okkar
í Los Arenales á
Alicantesvæðinu
á Spáni.
Allar nánari upplýsingar
má nna á heimasíðu
félagsins verks.is
eða í síma 456-5190.
Félag eldri borgara í Grundar
firði og Grundar fjarðar bær standa
að verkefni um heilsueflingu fyrir
íbúa sem eru 60 ára og eldri eða
búa við örorku. Verkefnið fer
af stað með góðum stuðningi
Grundarfjarðardeildar RKÍ og
aðkomu HVE og fleiri aðila.
Kynningarfundur var haldinn
laugardaginn 26. janúar sl. þar
sem verkefnið og vetrardagskráin
var kynnt, auk þess sem Ásthildur
E. Erlingsdóttir, sálfræðinemi var
með erindi um tengsl hreyfingar
og heilsu.
Markmið heilsueflingarinnar
eru að stuðla að auknum lífs
gæðum og betri heilsu íbúa,
með því að gera hreyfingu að
reglu legum þætti í daglegu lífi.
Sædís Helga Guðmundsdóttir
einka þjálfari verður leiðbeinandi
hópsins, en í boði eru tímar 2var
í viku í íþróttahúsi og 2var í viku
í Líkamsræktarstöð bæjarins.
Ætlunin er svo að flétta ýmsum
æfingum inní dag skrána, t.d.
crossfit, jóga, o.fl. auk þess að fá
inn fræðsluerindi. Þátt tak endum
stendur til boða að fá ástands
mælingar, til að mæla styrk, þol
og jafnvægi, fyrir og eftir hverja
önn, auk þess sem samstarf
verður við hjúkrunarfræðing
heilsu gæslu stöðvarinnar þar sem
fólki býðst að koma í heilsuviðtal.
Tímar í hreyfingu hófust
þriðjudag 29. jan. og í næstu
viku bætast tímar í ræktinni við.
Heilsuefling í Grundarfirði