Bæjarblaðið Jökull - 13.06.2019, Qupperneq 7
Starf Golfklúbbs Staðarsveitar
árið 2018 var með hefðbundnum
hætti. Rekstur Garðavallar undir
Jökli gekk vonum framar ekki síst
fyrir velvilja fjölda fyrirtækja sem
lögðu okkur lið með fjárstuðningi
og tekjur af gestum sem stoppuðu
og tóku einn hring ekki síst
útlendingum sem voru fleiri en
oft áður. Þar er markaður sem vert
er að huga að. Tíðafarið var blautt
þetta sumar og gekk á ýmsu við að
halda vellinum í góðu lagi. Sami
fjöldi er í klúbbnum en félagar
eru um 20 talsins en virkir félagar
færri. Vegna slæms tíðafars var
vormótið okkar Kríumótið fellt
niður.
Töðugjöld voru á dagskrá eins
og undanfarin ár og Tuddamótið
var haldið 1. september. Þar er
slegið saman keppni Golfklúbbs
Staðar sveitar og Golfklúbbs Gutt
orms tudda ásamt því að haldið
er opið puntamót. Þetta mót var
líka meistaramótið okkar félaga í
GST. Um kvöldið var síðan haldin
hátíðarkvöldverður í boði klúbbs
ins og veitt verðlaun sem voru
afurðir úr sveitinni gefið af heima
mönnum. Þá voru einnig krýndir
meistarar klúbbsins en þetta
árið var klúbbmeistari krýndur
Hjörleifur Þór Jakobsson án for
gjafar og Þórður Svavarsson varð
klúbbmeistari með forgjöf. Hlutu
þeir veglega bikara til geymslu
eitt ár og fá nöfn sín grafinn á þá.
Þetta ár varð klúbburinn 20
ára og var því kvöldverðurinn
haldinn með veglegri dagskrá
ræðu höldum og einnig söng
karla kórinn Heiðbjört fyrir gesti
og heima menn.
Til stóð að halda sameiginlegt
mót allra golfklúbbana á nesinu
þar sem spilað væri níu holur
á hverjum velli alls 36 holur á
tveim dögum. Enginn áhugi hinna
golfklúbbanna á nesinu er á þessu
móti þannig að það var fellt niður.
Sjáum til með þetta mót árið
2019. Haldið var áfram að laga
völlinn eins og fjármagn leyfði.
Tveir starfsmenn voru við störf
á vellinum megnið af sumarinu.
Einnig er unnið að því að bæta
grín vallarsins með fræsingum og
sáningum og baráttan við mosan
mun verða aðalverk næstu ára.
Þá er átak í gangi til að fá fleiri
heimamenn til liðs við klúbbin
með kennslu í golfi og nýtir
klúbburinn sér Snag golfbúðnað
til þess meðal annars. Er það
von okkar að það verði einhver
fjölgun í klúbbnum á næstu árum.
En hvað sem fjármálum og ytri
aðstæðum líður á komandi ári
stefnir Golfklúbbur Staðarsveitar
ótrauður á gera félagsmönnum
sínum til hæfis og að bæta
völlin sinn þannig að það verði
eftirsóknarvert að koma og spila
hann.
Haukur Þórðarson formaður
Allar upplýsingar fengnar úr
ársskýrslu HSH
Kynning á Golfklúbbi Staðarsveitar
Dagana 3 til 9. júní komu alls
243 tonn á land í höfnum Snæ
fellsbæjar í 115 löndunum. Þar
af var landað 130 tonnum í 33
löndunum í Rifshöfn, 87 tonnum
í 45 löndunum í Ólafsvíkurhöfn
og 26 tonnum í 37 löndunum á
Arnarstapa.
Einungis þrír dragnótabátar
lönduðu þessa daga Ólafur
Bjarna son SH 26 tonnum í 3,
Sax hamar SH 24 tonnum í 3 og
Egill SH 14 tonnum í 2 lönd
unum.
Tveir bátar hafa verið á grá
sleppu netum Signý HU landaði
5 tonn um í 2 og Glaður SH 1
tonni í 1 löndun.
Tveir stórir línubátar lönduðu
þessa daga Örvar SH 28 tonnum
í 1 og Rifsnes SH 17 tonnum í
1 löndun.
Hjá litlu línubátunum landaði
Stakkhamar SH 23 tonnum í 3,
Særif SH 15 tonnum í 2, Lilja SH
13 tonnum í 3, Brynja SH 9 tonn
um í 3, Rán SH 8 tonnum í 3 og
Sverrir SH 2 tonnum í 1 löndun.
50 handfærabátar lönduðu
þessa daga í Snæfellsbæ 24
bátar lönduðu 23 tonnum í 29
löndunum í Ólafsvíkurhöfn. Á
Arnarstapa lönduðu 15 bátar 26
tonnum í 37 löndunum og 16
bátar 11 tonnum í 20 löndunum
í Rifshöfn.
þa
Aflabrögð