Úrval - 01.11.1978, Síða 68
66
ÚRVAL
einasta vesælt skipti, íundið upp á
því að bjóða mér út að borða! ’ ’
Ef eitthvert ykkar skyldi af tilviljun
rekast á Jacob eða Michael eða
Marlönnu eða Níels - geti þið þá ekki
tekið í lurginn á þeim. • ★
Telly „Kojak” Savalas — sá sem leikur Kojak í sjónvarpsmynd-
unum — keypti bensín á bílinn sinn seint um nóttí Tinseltown. Þeg-
ar bensíngeymirinn var fullur, mátti sjá á honum að bensínið kostaði
12,37 dollara (rúmlega 3.200 krónur). Savalas kastaði 50 dollara (13
þúsund krónur) seðli á borðið, en afgreiðslumaðurinn sagðist ekki
geta gefið til baka af svona stórum seðli. Þá hnussaði Savalas og sagði:
, ,Hva — þetta eru bara peningar — eigðu afganginn!
Nú til dags er hægt að kaupa þroskaleikfang, sem kostar um 18
dollara. Þetta eru hringir sem smeygt er ofan yfír staut, og það á að
þroska huga barnsins að smeygja þeim upp á stautinn. Þegar ég var
krakki, gerði ég þetta sama með kleinuhringi — og allir sögðu að ég
væri hálfviti.
Sam Levenson
Helmingur allra karla hættir að anda allt að mínútu í senn, meðan
þeir sofa, allt að 19 sinnum á hverri nóttu. Þetta er hins vegar mjög
sjaldgæft meðal kvenna. Þetta kom fram við rannsókn á svefnförum í
öndunarsjúkdómadeild læknaskóla Flórída-háskóla. Af þessum önd-
unarhléum myndaðist svo mikilli súrefnisskortur hjá körlunum 40,
sem rannsóknirnar voru gerðar á, að það hefði getað valdið þeim al-
varlegum skaða, hefði það gerst á vökuríma þeirra, en svo virðist sem
þeir séu jafngóðir eftir þessi öndunarhlé næturinnar. Flestir þeirra
sem rannsakaðir voru, voru ungir og hressir, en líkur benda til, að
öndunarhlé í svefni aukist með aldri. Einnig kom fram, að eftir því
sem menn eru þyngri miðað við hæð, er þeim hættara við að taka sér
öndunarhlé. — Aðeins ein þeirra kvenna, sem rannsakaðar vom, tók
sér öndunarhvíld í svefni á þann hátt, sem lýst er hér að framan. Vís-
indamenn geta sér þess til, að þessi mismunir kynjanna stafi af kven-
hormóninu progesterone, sem er örvandi fyrir öndunina, og konur
hafa nóg af en karlar ekki.
Einu sinni var ungur maður, sem varð fyrir þeirri ógæfu að stúlkan
hans sagði honum upp af trúarástæðum. Hann var blankur en hún
trúði á peninga.
Today’s Chuckle