Úrval - 01.11.1978, Page 106

Úrval - 01.11.1978, Page 106
104 „Kannski okkar prestar hlýði ekki páfanum eins og ykkar gera. Þegar við kvöddumst, lá illa á mér. Sú tilhugsun, að þessi fallega og gðða vinkona mín kynni að fara í verri staðinn, hrelldi mig illilega. Ég óskaði þess, að ég væri svo vel að mér í trúarbrögðum, að ég gæti ljómað hug hennar og bjargað sálu hennar, svo við gætum átt vísa endurfundi í Paradís. Ég brá mér að hitta Luigiu frænku, þá manneskju sem ég vissi fróðasta í guðfræðilegum efnum, og spurði hana af lævíslegri kænsku um það, sem stóð huga mínum næst: ,,Segðu mér, frænka, að hvaða leyti eru okkar trú og grísk-kaþólsk ólíkar?” ,,Þær eru ólíkar að því leyti, að okkar er rétt en hin röng. Að því leyti eru þær ólíkar.” „Hvernig getur maður þekkt rétta trú frárangri?” „Hvaða fíflaspurningar eru þetta! Það er aðeins til ein rétt trú, okkar, allar aðrar eru rangar. Ég sá, að við myndum aldrei kryfja málið til mergjar með þessu móti. Kannski vissi ekki einu sinni frænka mismuninn og væri bara að klóra sig út úr þessu. Ég ákvað að ganga nær kjarnanum. , ,Svo er mál með vexti, að ég á vin, sem mér þykir afar vænt um. En hann er grísk-kaþólskur af því að það er trú foreldra hans. Er það þá honum að kenna, að hann er grísk-kaþólskur? Myndi hann fara í verri staðinn, ef ÚRVAL hann lifði eins og altarisdýrlingur alla sínaævi?” „Hann á ekki undankomu auðið, hann fer til vítis.” Þessi miskunnarlausi og afdráttar- lausi dómur bergmálaði 1 sál minni eins og náhringing. Ég yfirgaf frænku mína alveg eyðilagður. Löngunin til að bjarga sálarheill Fillíar gagntók mig. Ég óskaði þess, að ég væri prédikari og bað þess að kraftaverkið gerðist, svo hún frelsaðist frá píslum helvítis. Eitt kvöldið, þegar ég var kominn upp í og hugleiddi ömurleg örlög vinkonu minnar, datt mér nokkuð í hug, sem fljótlega varð að ákvörðun. Ég slökkti ljósið til að verða betur í einrúmi. Svo tók ég niður litlu meyjarmyndina, sem hékk yftr höfða- lagi mínu. Ég kraup, hélt myndinni fast að vörum mér eins og ég væri að hvísla að henni, og það, sem ég sagði, var efnislega þetta: „Ástakæra María guðsmóðir, skilningsríkust allra dýrlinga, heyr þú bæn mína. Þetta er ekki latínubæn eins og allar hinar. Þetta er prívatbæn frá sjálfum mér. En ég bið þig að hlusta samt á hana og lyfta þungu fargi af mér. Ég þekki stúlku — ég er ekki ástfanginn af henni, heldur þykir bróðurlega vænt um hana. En veslingurinn — það er ekki henni að kenna að hún er grísk- kaþólsk — á að lenda í víti. Mig langar að biðja þig að tala við son þinn, sem elskar þig svo mikið, og fá hann til að þyrma þessari stúlku frá eilífum kvölum. Eða, ef það er ekki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.