Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 01.07.2021, Blaðsíða 1

Bæjarblaðið Jökull - 01.07.2021, Blaðsíða 1
Síðastliðinn laugardag fór Snæfellsjökulshlaupið fram. 249 keppendur hlupu frá ráslínunni á Arnarstapa, yfir jökulhálsinn og í mark í Ólafsvík. Metskráning var í hlaupið í ár eða 300 manns, hins vegar varð eitthvað um afföll og voru 249 hlauparar sem mættu til leiks. Aðstæður á jöklinum voru krefjandi, mikill snjór, hvasst, skafrenningur og haglél á tímabili. Björgunarsveitin stóð vaktina á hlaupaleiðinni með drykkjastöðvar með 4 km millibili auk þess sem þau voru keppendum innan handar ef eitthvað kom uppá. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður skiluðu hlauparar sér þó í mark og fyrir vikið voru 22 kílómetrarnir meira afrek en ella. Þegar keppendur komu í mark biðu þeirra þátttökuverðlaun og hressing í Sjómannagarðinum auk þess sem Sker var á svæðinu með súpur og salöt til sölu. Verðlaunaafhendingin fór einnig fram í Sjómannagarðinum en það var Þorsteinn Roy Jóhannsson sem sigraði hlaupið á 1 klukkustund og 43 mínútum. Andrea Kolbeinsdóttir var fyrst kvenna og kláraði hún á 2 klukkustundum og 2 mínútum. Þorsteinn og Andrea hlutu bæði bikar en einnig voru veitt verðlaun fyrir efstu þrjú sætin fyrir bæði karla og kvennaflokk hjá 39 ára og yngri, 40 til 49 ára, 50 til 59 ára og svo 60 ára og eldri. Mikil ánægja var með vel heppnaðan dag bæði hjá skipuleggjendum og keppendum sem eins og sannir íslendingar létu veðrið ekki á sig fá. sj 981 tbl - 21. árg. 1. júlí 2021 Ólafsbraut 55, Ólafsvík Sími: 436 1212 Vindur og snjór í erfiðu hlaupi Vegna sumarleyfa kemur Bæjarblaðið Jökull ekki út næstu 5 vikur. Næsta tölublað Jökuls kemur út 12. ágúst. Jökull kominn í frí Það voru ekki allir keppendur með stuðningsmenn sem fylgdu þeim en þessi áhorfandi kvatti ömmu sína áfram með skilti sem hann málaði sjálfur.

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.