Bæjarblaðið Jökull - 01.07.2021, Blaðsíða 6
Kæru Snæfellsbæingar og
knattspyrnuáhugafólk.
Eins og undanfarin ár er
mikið líf á knattspyrnuvellinum í
Snæfellsbæ í sumar þar sem yngri
flokkar í Snæfellsnessamstarfinu
spila meirihluta heimaleikjanna
hérna og við erum einnig með
tvo meistaraflokka á Íslandsmóti.
Það er því mikið um æfingar og
leiki og við erum með allt frá
ungum krökkum sem eru að
stíga sín fyrstu fótboltaskref og
upp í fullorðna karlmenn sem
tóku fram af hillunni skóna til
að spila aftur. Við erum með nýtt
fólk í mörgum störfum og félögin
eru að reyna að fóta sig og finna
sinn takt aftur eftir að hafa verið í
frekar fastmótuðu starfi í mörg ár
eða byrja aftur eftir langan tíma.
Barna- og unglingastarfið er með
svipuðu sniði og undanfarin ár þar
sem iðkendur fara á Íslandsmót
frá 5. flokk og sækja öll helstu
fótboltamótin og gengi þeirra
hefur verið mjög gott það sem af
er sumri. Það hefur verið gaman að
fylgjast með áhuganum á leikjum
Reynis og sjá stemninguna og
áhugann sem leikmennirnir
nota í baráttunni á vellinum. Það
er frábært að sjá hversu margir
öflugir knattspyrnumenn eru í
bæjarfélaginu og hversu vel þeir
standa sig á vellinum. Víkingur
er einnig með öfluga heimamenn
sem standa sig mjög vel ásamt
aðkomumönnum eins og verið
hefur undanfarin ár. Það voru
væntingar um betra gengi hjá
liðinu í sumar en ekki hefur
gengið nógu vel undanfarið en
þá þýðir ekki að gefast upp heldur
þurfum við að vinna saman og
vera jákvæð og styðja okkar lið
áfram.
Það er svo sannarlega ekki
sjálfgefið fyrir sveitarfélög eins og
okkar að geta haldið út jafn öflugu
starfi eins og búið er að byggja
upp í Snæfellsbæ. Það er mikil
vinna sem sjálfboðaliðar vinna í
svona félagsstarfi og það væri ekki
hægt að halda uppi svona góðu
og kraftmiklu starfi ef þeirra nyti
ekki við. Eins og málshátturinn
segir þá vinna margar hendur
létt verk og ég er þess fullviss
um að ef einhverjir hafa áhuga
á að vinna fyrir íþróttafélögin er
það vel þegið.
Áfram Víkingur, Reynir og
Snæfellsnessamstarfið !
Það ættu allir að geta fundið sér
leik til að kíkja á í sumar.
Hafið það gott og njótið
sumarins.
Laufey Helga Árnadóttir,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
í Snæfellsbæ
Vinnum saman og verum jákvæð
- Bílaviðgerðir
- Skipaþjónusta
- Almenn suðuvinna
- Smurþjónusta
- Smábátaþjónusta
- Dekkjaverkstæði
vegr@vegr.is vegr.is
S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Á heimasíðu hafrann sóknar-
stofnunar er sagt frá því að Kelly
Umlah hefur tekið til starfa sem
nýr stöðvarstjóri og sérfræðingur
Hafrannsóknastofnunar í Ólafs-
vík. Kelly er með mastersgráðu
frá Háskólasetri Vestfjarða /
Háskólanum á Akureyri í haf-
og strandsvæðastjórnun og BES
gráðu frá St. Mary‘s University
í Kanada í umhverfisfræðum.
Kelly hefur unnið við kennslu í
um hverfis fræðum og við skipu-
lagningu á íþrótta- og ung menna-
starfi undanfarin ár.
Meðal helstu verkefna í starfs-
töðinni í Ólafsvík eru sýnataka
úr afla, greining magasýna og
þörunga. Fyrir starfar í Ólafsvík
Gina Sape Sapanta. Kelly mun
leiða frekari uppbyggingu í stöð-
inni í Ólafsvík á næstu árum. Við
bjóðum Kelly velkomna til starfa
hjá Hafrannsóknastofnun og
hlökkum til að sjá starfstöðina í
Ólafsvík byggjast upp og blómstra
frekar með hennar hjálp og Ginu.
Nýr stöðvarstjóri
Hafró í Ólafsvík