Bæjarblaðið Jökull - 01.07.2021, Page 9
Norska línu- og netaskipið
Veidar M-1-G kom til hafnar í
Grundarfirði á mánudag til að taka
olíu og kost, Veidar er tiltölulega
nýtt skip, smíðað 2018. Skipið er
rúmir 55 metrar að lengd og 13
á breidd.
Athyglisvert er að línan er
dregin í gegnum svokallaðann
brunn í botni skipsins og því geta
skipsverjar verið inni á meðan
línan er dregin, vinnuaðstaðan
er því betri auk þess sem afföll
af fiski eru minni, þ.e.a.s. minna
tapast af fiski á rúllunni.
Veidar M-1-G leysti Veidar 1
af hólmi en það skip heitir í dag
Þórsnes SH 109 og er gert út
frá Stykkishólmi af samnefndu
fyrirtæki. Myndina tók Sverrir
Karlsson.
Veidar heimsótti Grundarfjörð
Við þökkum styrktar- og samstarfsaðilum Snæfellsjökuls-
hlaupsins kærlega fyrir stuðninginn og samstarð.
Einnig öllum þeim heimamönnum sem hjálpuðu okkur
við að gera hlaupið framkvæmanlegt.
ÞAKKIR FRÁ AÐSTANDENDUM
SNÆFELLSJÖKULSHLAUPSINS