Bæjarblaðið Jökull - 22.12.2021, Page 41
Börnin á Rauðu deildinni á
leikskólanum Krílakoti í Ólafsvík
skelltu sér í gönguferð í síðustu
viku, starfsfólk leikskólans ákvað
að nota tækifærið fyrst að
veðurfar var líkara vorveðri en
dæmigerðu desemberveðri.
Börnin heimsóttu nokkur
fyrir tæki og stofnanir við Ólafs-
braut, heilsuðu upp á starfsfólk
og skoðuðu jólaskreytingar. Allir
voru í miklu jólaskapi og tóku
því mjög vel að fá börnin í
heimsókn og ekki spillti fyrir að
börnin sungu jólalög fyrir
starfsfólk og viðskiptavini.
Fyrir framan verslunina Hrund
var jólasveinn sem dillaði sér og
söng jólalög og vakti það mikla
kátínu hjá börnunum, ákveðið
var að stilla sér upp fyrir mynda-
töku með jólasveininum.
Rauða deildin í jólagönguferð
Grjótverk óskar Snæfellingum gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári,
þökkum samveruna á árinu sem er að líða.
Óskum ættingjum og vinum nær og ær,
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Ómar og Kay
Kæru ættingjar og vinir.
Innilegar jóla- og nýárskveðjur,
með þökk fyrir það liðna.
Elísabet Jóna Ingólfsdóttir