Íþróttablaðið Sport - 01.05.1958, Qupperneq 1

Íþróttablaðið Sport - 01.05.1958, Qupperneq 1
Það þótti tíðindum sceta, að ungur og tiltölulega óþekktur hlaupari, skyldi vinna Víðavangshlaup ÍR og síðan Drengjahlaup Armanns. Þessi ungi hlaupari heitir Haukur Engilbertsson, Borgfirðingur að ætt og uppruna. Hér er glögg sönnun þess, að þú lesandi góður, hvar sem þú ert og iðjar, getur stundað íþrótt þína og náð árangri, þótt ekki séu íþróttavellir ncertcekir. Það eru tvö meginskilyrði, sem þolhlaupari verð- úr að uppfylla. Annað er að vera líkamlega og and- lega heilbrigður og hitt að nenna að cefa skynsamlega. Hatikur Engilbertsson og aðrir ungir menn, sem fara að dcemi hans, halda uppi merki fornrar hreysti og skapseiglu. Eitt mesta vandamál menningarþjóða heims er sporletin. Við Islendingar stöndum þegar augliti til auglitis við þann vanda. Við viljum helzt ekki ganga og því síður 'hlaupa. Upp þarf að skera herör nú þegar og gera það lýðum Ijóst, að trauðla getur það kallast líf að lifa fótavana. Heilsa og hreysti eru engan veginn sjálfsagðir hlutir. Hvorttveggja glatast sé þess ekki gcett að lifa samkvcemt lögmálum lífsins. En allt líf er starf, hreyfing. Sé hreyfingin svo lítil, að hún kom- ist niður fyrir ákveðið lágmark, orsakar það hrörnun. Og því miður mcetir þú víða ungum mönnum með þessi hrörnunareinkenni. Eins og kunnugt er hefur líkaminn mikla aðlög- unarhcefni. Sé lítið reynt á hann, lagar hann sig eftir því og dregur úr byggingarstyrkleika sínum, bein og vöðvar rjrna. Sé hinsvegar reynt á líkamann og hann þjálfaður, þá eykst styrkleiki hans, þróttur og þol. Þjálfuð og hraust ceska lætur ekki bugast þótt á móti blási. Hún finnur styrk sinn og lífsþrótt og þráir starf og viðfangsefni. Fámenn þjóð í stóru landi verður að geta byggt menningu sína og athafnalíf á hraustum einstakling- um. - Ungir Íslendingar, stælið þrótt ykkar^ og þrek. Hér sézt Haukur Engilbcrtsson sigra Kristleif GuSbjörnsson í Það eykur starfshæfnina og lengir starfsævina. Drengjahlaupi Ármanns. (Ljósm. R. Vignir).

x

Íþróttablaðið Sport

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið Sport
https://timarit.is/publication/1898

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.