Íþróttablaðið Sport - 01.05.1958, Side 5

Íþróttablaðið Sport - 01.05.1958, Side 5
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ SPORT 5 Heimsókn Helsingör I.F. Dagana 9.—16. maí dvöldust hér á vegum KR flokkar karla og kvenna frá Helsingör, en það nafn ber nú hæst í dönskum handknatt- leik. Sérstaklega var mikill feng- ur af komu karlaliðsins, en Hels- ingör myndar um þessar mundir kjarnann í danska landsliðinu og er nú Danmerkurmeistari í hand- knattleik. Fyrsti leikur Helsingör var við gestgjafa þeirra, íslandsmeistar- ana úr KR, og bar sá leikur nokk- urn keim kunningsskapar og bræðralags, enda heimsótti KR Helsingör sl. sumar eins og menn muna. Það kom brátt í ljós, að hið litla Hálogaland háði Dönun- um mjög; þeir áttuðu sig ekki á hinum breyttu fjarlægðum og höfðu sýnilega of lítið rúm til að útfæra sitt fræga línuspil. Lauk þessum fyrsta leik með jafntefli, 24:24, og verður það að teljast góð- ur árangur hjá KR. Hinsvegar voru Danirnir bersýnilega ekki ánægðir með úrslitin né sína frammistöðu. Enda kom það á daginn í næsta leik, sem var gegn FH, að Danirnir gátu leikið af meiri festu en íram kom í fyrsta leiknum meðan þeir voru óvanir aðstæðum. Höfðu Hafnfirðingar ekki roð við þeim og máttu horfa upp á sitt stærsta tap um langt skeið, 33:24.1 þessum leik vakti markvörðurinn, Bent Morthensen, sérstaka athyg'li, en hann sýndi einhverja beztu mark- vörn, sem hér hefur sézt. Voru staðsetningar hans sérstaklega at- hyglisverðar og lærdómsríkar fyrir markverði okkar. Þriðji leikur Dananna var gegn hinu unga og efnilega liði IR. Er óhætt að fullyrða, að það hafi ekki brugðist vonum manna, því að þarna virtust Danirnir í fyrsta skipti mæta jafningjum sínum í knattmeðferð og leikhraða. Var fyrri hálfleikurinn tvímælalaust með því bezta, sem sézt hefur að Hálogalandi til þessa. I hálfleik höfðu ÍR-ingar 2 mörk yfir (15: 13) og héldu síðan áfram sókninni með þeim árangri, að leikar stóðu á tímabili 20:16 fyrir ÍR. En þá urðu skyndilega þáttaskil í leikn- um, enda var hraðinn þá orðinn meiri en svo að iR-ingar þoldu hann. Á síðustu mínútunum var aðeins eitt lið á vellinum; ÍR-ingar voru gjörsamlega útkeyrðir og Helsingör sigraði örugglega með 30:25. Enda þótt Danir færu lof- samlegum orðum um frammistöðu allra ísl. liðanna, voru þeir ekki hvað sízt hrifnir af leik IR og töldu liðið eiga mikla framtíð fyrir sér. Síðasti leikurinn í heimsókn þessa skemmtilega liðs var gegn úrvali H.K.R.R. Það lið var nær eingöngu skipað leikmönnum úr ÍR og KR og virtist fljótt á litið vera mjög sterk uppstilling. En þegar á hólminn kom reyndunt þessar samstæður ekki eiga vel saman; liðið átti frekar lélegan leik og beið ósigur með 25:19. Leikirnir í kvennaflokki voru flestir mjög skemmtilegir, en því miður gefst ekki tóm til að ræða þá nánar hér. TJrslit þeirra urðu þessi: Helsingör — KR 16:14, Ár- mann—Helsingör 24:17 og Hels- ingör — Úrval 10:9. Náðu ísl. stúlkurnar þannig betri árangri en karlmennirnir, unnu einn leik og töpuðu hinum báðum með mjög litlum markamun. óhætt er að fullyrða, að þessi heimsókn hafi orðið handknatt- leiknum hér til mikils góðs og væri óskandi að framhald mætti verða á slíkum samskiptum sem hér hef- ur verið komið á. K. Hraðkeppni í handknatfleik 4 maí efndi H.S.Í. til hraðkeppni að Hálogalandi. í meistaraflokki karla mættust 3 efstu liðin á íslandsmótinu ásamt úrvali úr öðrum félögum. Fyrst kepptu FH og úrvalið og sigraði FH með 12:7. Þá kepptu KR og ÍR og sigraði KR naumlega 10:9. í úrslita- leiknum sigraði FH hina nýbökuðu ís- landsmeistara KR með talsverðum yf- irburðum (18:10). í meistaraflokki kvenna endurtók sama sagan sig. íslandsmeistarar Ár- manns biðu ósigur fyrir KR, enda þótt munurinn væri aðeins eitt mark (7:6).

x

Íþróttablaðið Sport

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið Sport
https://timarit.is/publication/1898

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.