Íþróttablaðið Sport - 01.05.1958, Page 6

Íþróttablaðið Sport - 01.05.1958, Page 6
6 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ SPORT Sundmót I.R. Sundmót ÍR var haldið í Sundhöll Reykjavíkur 28.—30. apríl s.l. Til móts- ins var boðið sænsku sundkonunni Kar- in Larsson frá Málmey og danska sund- manninum Lars Larsson. Voru hér góðir gestir á ferð og í fremstu röð sundmanna á Norðurlöndum. Árangur mótsins var mjög góður sem m. a. má sjá af því að sett voru sex ný íslandsmet og það sjöunda jafnað. Keppnin milli gestanna og heimamanna var mjög skemmtileg og spennandi og er skemmst frá því að segja að ísl. sundfólkið sigraði í 8 af þeim 10 grein- um, sem báðir aðilar tóku þátt í. Beztu tímar Karinar fyrir mótið voru þessir (skriðsund): 50 m: 30,9 sek., 100 m: 1:06,8 mín. og 200 m: 2:23,8 mín. (sænskt met). Tímar Ágústu í sömu röð: 30,2 — 1:07,0 og 2:33,0. Samkvæmt þessu mátti búast við því að keppnin milli þeirra yrði mjög hörð, einkum á 100 m, enda kom það á daginn. Um Lars Larsson er það að segja, að hann hafði skömmu fyrir síðustu ára- mót sett danskt met í 100 m skrið- sundi (57,7) og síðan synt nokkrum sinnum á 58—59 sek. Þá hafði hann nýlega sett dönsk met í 200 m (2:07,8) og 400 m skriðsundi (4:42,1). Guðm. Gíslason, hinn nýbakaði íslandsmet- Viðbragð Guðmundar í baksundinu. hafi í 100 m skriðsundi (58,2), fékk því verðugan keppinaut að glíma við, þótt raunin yrði sú, að þriðji maðurinn, Pétur Kristjánsson, blandaði sér nokk- uð óvænt í keppnina. Er óhætt að segja að Pétur hafi komið einna mest á óvart af öllum keppendum mótsins. Lars Larsson varð sem sagt að láta sér nægja 3ja sætið í 100 m í bæði skiptin, að vísu eftir mjög jafna og spennandi keppni. Guðmundur sigraði í fyrra skiptið, en Pétur í síðara skiptið. Þá sigraði Pétur Lars í 50 m skriðsundi, en Guðmundur varð þriði og loks sigr- aði Guðmundur Lars í 50 m baksundi. 400 m skriðsund var því eina grein- in, sem Lars vann hér að þessu sinni, en þar hafði hann yfirburði og skorti aðeins 8/10 úr sek. upp á danska metið. Guðmundur synti þó á sínum bezta tíma og var byrjunarhraðinn svo mik- ill, að millitími hans á 200 m var nýtt ísl. met (2:18,5). Keppnin milli Karinar og Ágústu var einnig mjög spennandi. Þær mættust tvisvar í 100 m skriðsundi og sigraði Ágústa í bæði skiptin. í fyrra skiptið setti hún nýtt ísl. met — 1:06,4 •—■ sem mun vera bezti tími í ár á Norðurlönd- um. Karin synti þá á 1:07,5 mín. í síð- ara skiptið var tími beggja örlítið lak- ari, en innbyrðis munur minni. Ágústa sigraði einnig í 50 m skrið- sundi og 50 m flugsundi, en þar sýnti hún á mettímanum — 33,6 sek. Að vísu tókst Karin að sigra Ágústu í einni grein — 200 m skriðsundi —, en tími beggja var nokkuð frá því bezta, sem þær hafa náð. Loks náði Karin góðum tíma í 100 m flugsundi (1:19,3), en hafði engan til að keppa við nema klukkuna. í 50 m flugsundi karla varð Pétur að synda aleinn, en tókst þó að bæta met sitt um 4/10 sek. Guðmundur bætti enn einu sinni met sitt í 100 m bak- sundi og synti á 1:08,6 mín, sem mun vera með beztu tímum á Norðurlönd,- um í ár. Er aðeins kunnugt um einn mann, Lasse Erikson, Svíþjóð, sem hef- ur náð betri tíma (1:07,7). Hrafnhildur Guðmundsdóttir, ÍR (14 ára) setti nýtt ísl. met í 100 m bringu- sundi (1:27,9), en hafði áður jafnað eldra metið (1:28,7), sem Þórdís Árna- dóttir, Á setti fyrir 8 árum. í 200 m bringusundi skorti Hrafnhildi aðeins 2 sek. á hið 10 ára gamla met Önnu Ólafsdóttur, Á, en í því sundi náði Sig- rún Sigurðardóttir frá Hafnarfirði ó- venju góðum tíma — 3:17,7 mín. Af öðrum athyglisverðum afrekum má nefna 400 m bringusund Sig. Sigurðs- sonar, ÍA (6:05,1) og Valgarðar Egils- sonar, HSÞ (6:10,6). Loks setti sveit ÍR (Guðmundur, Þorsteinn Löve og Gylfi Guðmundsson) ágætt met í 3x50 m þrísundi — 1:33,5 mín., en þar átti Ægir eldra metið — 1:37,4 mín. sett 1951. Að þessu sinni var tekin upp sú ný- breytni að hafa félagastigakeppni fyrsta dag mótsins. Setti þetta sinn svip á þátttökuna, sem var óvenju mikil þann dag. Úrslit stigakeppninnar urðu þessi. 1. Ármann 45 stig, 2. ÍR 34 stig, 3. Sundfélag Hafnarfjarðar 12 stig, 4. ÍBK 10 stig, 5 íA 7 stig, 6. KR 4 stig og 7.—8. Ægir og HSÞ 2 stig. Helztu úrslít urðu þessi: FYRSTI DAGUR: 100 m skriðsund karla: 1. Guðmundur Gíslason, ÍR .... 59,2 2. Pétur Kristjánsson, Á ....... 59,6 3. Lars Larsson, Danm........... 59,8 100 m skriðsund drengja: 1. Erling Georgsson, SH....... 1:08,0 2. Hörður Finnsson, ÍBK ...... 1:08,5 3. Sólon Sigurðsson, Á ....... 1:08,5 Hrafnhildur Guðmundsdóttir, ÍR.

x

Íþróttablaðið Sport

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið Sport
https://timarit.is/publication/1898

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.