Íþróttablaðið Sport - 01.05.1958, Qupperneq 15

Íþróttablaðið Sport - 01.05.1958, Qupperneq 15
ÍÞRÖTTABLAÐIÐ SPORT 15 Islandsmót í badminton 10. Islandsmótið í badminton var haldið í Stykkishólmi 2. og 3. maí s.l. Þátttakendur voru 23, 10 frá TBR og 13 frá Umf. Snæfelli í Stykkishólmi. Uslitaleikirnir fóru sem hér segir: Meistaraflokkur Einliðaleikur karla: Ágúst Bjart- marz. Umf. Snæfelli gegn Wagner Wal- bom, TBR. Wagner vann fyrstu lotu með 15:10, en Ágúst þá næstu með sama stigamun. Eftir þessar tvær lotur gaf Wagner leikinn og hlaut Ágúst því meistaratitilinn. Wagner var meistari í fyrra, en Ágúst í hitteðfyrra. Einliðaleikur kvenna: Ragna Han- sen, Umf. Snæfelli sigraði Halldóru Thoroddsen, TBR með 6:11, 11:8 og 12:9. Þetta er í fyrsta sinn sem Ragna vinnur meistaratitilinn, en hún hefur tekið þátt í Islandsmótinu frá byrjun og oft komizt í úrslit. Tvíliðaleikur karla: Wagner Walbom og Þórir Jónsson, TBR sigruðu þá Ágúst Bjartmarz og Ólaf Guðmundsson, Umf. Snæfelli með 15:9 og 15:11. Tvíliðaleikur kvenna: Ragna Hansen og Hansa Jónsdóttir, Umf. Snæfelli sigruðu þær Halldóru Thoroddsen og Sigríði Guðmundsdóttur, TBR með 15:6 og 15:4. Ragna og Hansa er mæðgur! Tvenndarkeppni: Wagner Walbom og Halldóra Thoroddsen, TBR sigruðu þau Ágúst Bjartmars og Hönsu Jónsdóttur, Umf. Snæfelli með yfirburðum, 15:2 og 15:2. 1. flokkur Einliðaleikur karla: Gunnlaugur Lárusson, Umf. Snæfelli sigraði Sigurð Helgason, Umf. Snæfelli með 5:15, 15:6 og 15:12. Einliðaleikur kvenna: Hansa Jóns- dóttir, Umf. Snæfelli sigraði Hjördísi Hjörleifsdóttur, TBR með 11:3 og 11:9. Tvíliðaleikur karla: Gunnlaugur Lárusson og Sigurður Helgason, Umf. Snæfelli sigruðu þá Pétur O. Nikulás- son og Rafn Viggósson, TBR með 18:13 og 15:12. Tvíliðaleikur kvenna: Anna Bjart- marz og Ólöf Ágústsdóttir, Umf. Snæf. sigruðu þær Hjördísi Hjörleifsdóttur og Ingibjörgu Sigurðardóttur, TBR með 15:12 og 15:9. Tvenndarkeppni: Ólöf Ágústsdóttir og Sigurður Helgason, Umf. Snæfelli sigruðu þau Hjördísi Hjörleifsdóttur og Pétur O. Nikulásson, TBR með 15:7, 9:15 og 18:15. Samkvæmt framansögðu sigr- uðu Stykkishólmsbúar í 8 greinum af 10 og sönnuðu enn sem fyrr ágæti sitt í þessari íþróttagrein. Umf. Snæfell sá um framkvæmd mótsins undir forustu Ólafs Guð- mundssonar og fórst það vel úr hendi. Guðjón Einarsson, varafor- seti ÍSÍ, setti mótið og afhenti verðlaun og færði Umf. Snæfelli oddfána ISÍ í viðurkenningarskyni fyrir 10 ára heilladrjúgt starf í þágu badmintoníþróttarinnar. Ársþing SKÍ var haldið í Skíðaskálanum í Hveradöl- um 4. apríl. í stjórn Skíðasambandsins voru kjörnir: Hermann Stefánsson, for- maður, Eysteinn Árnason, Einar Helga- son, Þórarinn Guðmundsson, Jón Ágústsson(allir frá Akureyri), Bragi Magnússon (Siglufirði), Einar B. Ingv- arsson (ísafirði), Gísli Kristjánsson og Ragnar Þorsteinsson (Reykjavík). í skíðadómstól voru kjörnir: Einar B. Pálsson, Georg Lúðvíksson og Gunn- ar Hjaltason. Skíðamóf Reykjavíkur varð æði langdregið að þessu sinni. Mótið hófst 16. febr., en lauk ekki fyrr en 20. apríl. Reykjavíkurmeistarar urðu: í svigi Karolína Guðmundsdóttir, KR og Svanberg Þórðarson, ÍR, — í stórsvigi Ingibjörg Árnadóttir, Á og Bogi Nilsson, KR — í bruni Karolína Guðmundsdóttir, KR og Valdimar Örn- ólfsson, ÍR — í stökki Ólafur Nilsson, KR og loks í göngu og norrænni tví- keppni Haraldur Pálsson, ÍR. Skíðamót Norðurlands fór fram í Hlíðarfjalli við Akureyri 3. —4. maí sl. Veður var ágætt og fór mótið vel og skipulega fram. Hinsvegar var þátttaka minni en efni stóðu til. Helztu úrslit urðu þessi: Stórsvig, A-flokkur: Mín. 1. Magnús Guðmundsson, Ak . 1:10,9 2. Hjálmar Stefánsson, Ak .... 1:12,9 3. Einar V. Kristjánsson, Ólf. .. 1:14,5 í B-flokki sigraði Hákon Ólafsson, Sigluf. og í C-flokki Hallgrímur Jóns- son, Ak. Svig, A flokkur: Mín. 1. Hjálmar Stefánsson, Ak .... 2:26,5 2. Magnús Guðmundsson, Ak .. 2:28,6 3. Bragi Hjartarson, Ak........ 2:30,1 í B-flokki sigraði Hákon Ólafsson, Siglufirði og í C-flokki ívar Sigmunds- son, Ak. Stökk, 20 ára og eldri: Stig. 1. Kristinn Steinsson, Ak ..... 209,8 2. Einar V. Kristjánsson, Ólf. . . 209,5 3. Hjálmar Stefánsson, Ak...... 207,8 í stökki 15—16 ára sigraði Jón Halí- dórsson, UMSE með 208,2 st. 4x5 km boðganga: Klst. 1. Sveit Akureyrar ........ 1;35:32,0 2. Sveit Þingeyinga ........ 1 ;40:13,0 3. Sveit Siglufjarðar ..... 1;41:47,0 í sveit Akureyrar voru: Guðm. Þor- steinsson, Haukur Jakobsson, Stefán Jónsson og Kristinn Steinsson. Til lesenda Fréttir og annað efni þessa blaðs er miðað við 20. maí. Vegna hins tak- markaða rúms hafa nokkrar greinar orðið að bíða næsta blaðs. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jóhann Bernhard, Öldugötu 59, Reykjavík Útgefandi: íþróttablaðið Sport h.f. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.

x

Íþróttablaðið Sport

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið Sport
https://timarit.is/publication/1898

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.