Kosningablað borgaralistans - 17.01.1942, Side 2

Kosningablað borgaralistans - 17.01.1942, Side 2
KOSNINGABLAÐ BORGAKALISTANS Annan sunnudag verða bæjar- búar kvaddir til að velja fulltrúa, til að taka ákvarðanir um stjórn og starfrækslu bæjarins, næstu 4 ár. Enginn hugsandi bæjarbúi get- ur látið sér á sama standa, hvernig tiltekst um val þeirra 11 manna, sem fela á þann vanda. Bæjarmál- efnin eru orðin það umfangsmikil og fé það sem bæjarbúar verða að leggja fram árlega svo mikið, að heita má að afkoma og stjórn bæj- arins snerti hvern einstakling per- sónulega. Til skamms tíma var sú tilhögun alltíð hér, að velja mæta og merka borgara, sem nutu alhliða trausts fyrir starfshæfni, réttsýni og heiðarleik, til að taka sæti í hrepps- og bæjarstjórnum. Gekk þetta oftast hávaðalaust, án áróð- urs, æsinga eða mannskemmda. svo sem nú er alltítt orðið. Með vaxandi flokksræði, er hér breyt- ing á orðin. Flokkarnir hafa kosið sér að gera bæjarmálefnin að bit- beini og bæjarstjórnarfundi að pólitískum rifrildisfundum, þar sem störfin gleymast í háværu glamri um allt og ekki neitt, enda finnst varla lengur bæjarbúi, sem telur það ómaksins vert að koma á bæj arst j órnarf undi. Svo ólmar eru flokkaklíkurnar, að þær telja það ganga glæpi næst, ef einhverjir borgarar leyfa sér að nota lögheimilaðan rétt og gefa bæjarbúum kost á að velja aðra til trúnaðarstarfa fyrir bæjarfélagið, en flokkaklíkunum finnst sér hag- kvæmt í það og það skiptið. Hér er nú á ný hafinn þessi skrípaleikur, með hótunum og hrópum halda þessir steinrunnu flokkaspekúlant- ar, að þeir geti hrætt bæjarbúa til fylgis við þetta eða hitt flokks- brotið. Nazistar er heróp það sem hrífa á, allir þeir sem ekki á einn eða annan hátt eru háðir flokks- klíkunum eru bara stimplaðir nazistar, og þá er allt í lagi, eins og komizt er að orði. Spaugilegast er þó þegar menn, sem fyrir fáum árum óðu grenjandi um bæinn með hakakrossmerki á erminni, garga nú nazistar, nazistar að mönnum, sem aldrei hafa prýtt fatnað sinn með erlendum ein- kennismerkjum, heldur hafa látið sér nægja að vera — íslendingar og annað ekki, og þótt sómi að. í þessu moldviðri á svo almenn- ingur að gleyma því, að kjósa átti menn til að stjórna málefnum bæj- arins af hófsemd og viti um næstu 4 ár. Bæjarbúar hafa úr nógu að velja, 5 listar, hver með 22 mönn- um, samtals 110 menn ,eru í kjöri. Þar af eru 3 yfirlýstir listar tiltek- Stefnurogstörf inna fyrirtækja eða stétta; kaup- félagslistinn og verkamannalist- arnir tveir. Þeir menn, sem þessa lista skipa, telja sig til þess kosna, að gæta sinna sérhagsmuna og þeirra aðila, sem að flokksbrotum þeirra standa. Ekki er þó vitanlegt, að bæjar- stjórn hafi á undanförnum árum, eða sé líkleg til þess í framtíðinni, að ganga á rétt þessara aðila, þvert á móti. Kaupfélögin njóta hér vildar- kjara um greiðslur allar til bæjar- félagsins, svo að í engu samræmi getur talist við byrðar þær, sem aðrir bæjarbúar verða á sig að leggja. Hlunnindi þessi eru lög- vernduð, svo engin breyting verð- ur hér á gerð, jafnvel þó vilji væri fyrir hendi innan bæjar- stjórnarinnar. Þau vildarkjör, sem kaupfélögunum eru tryggð innan bæjarfélagsins, eru svo framúr- skarandi, að bærinn hefði á árun- um fyrir stríðið komizt í algjört greiðsluþrot, ef lagt hefði verið á rekstur Sambandsins hér í bæ, eftir sömu reglum. Þessir menn, sem njóta sérstakra forréttinda, þykjast nú þurfa að tryggj a aðstöðu sína enn betur. Þeir heimta aukin áhrif og þá sennilegast ný forréttindi innan bæjarfélagsins, á kostnað þeirra, sem bera hina þyngri byrðí. Þeir, sem stuðla vilja að slíku, kjósa að sjálfsögðu kaupfélagslistann. Listar verkamanna eru með svip- uðu marki brenndir. Að vísu nýt- ur verkalýður bæjarins ekki neinna sérstakra forréttinda, og verkafólk verður að standa undir byrðum bæjarfélagsins til jafns við aðra borgara, en forustumenn verkalýðsins virðast una þessari tilhögun illa. Með fráleitum kröf- um til alls og allra, reyna þeir að æsa verkafólk gegn öðrum stéttum bæjarins, spilla vinnufriði og sam- starfi milli verkafólks og annarra. Þó hér sé ekki skilið á milli Erlings og Steingríms, þar sem hin yfir- lýsta stefna er í aðalatriðum ein og hin sama, þá eru þessir sálufé- lagar þó jafn ólíkir og stóri Kláus og litli Kláus. Þessir aðilar heimta hóflausar byrðar á athafnalíf bæjarins, og illindi og ófrið milli stétta bæjar- félagsins. Þeir, sem að slíku vilja styðja, kjósa annan hvorn verka- mannalistann. Fjórði listinn kennir sig við Sj álfstæðisflokkinn, þó draga verði í efa, að hér sé um meira en nafnið að ræða. Svo sem kunnugt er, hefir Sjálf- stæðisflokkurinn valið sér kjör- orðin: „Flokkur allra stétta“, en í meðferð forustumannanna hér, er sem eitthvað hafi skolast til, því ef velja ætti lista þeirra kjör- orð, þá gæti það naumast verið annað en: „Listi allra flokka“. Ægir þar saman Sj álfstæðismönn- um, Framsóknarmönnum og Kommunistum, og er sagt, að svo brátt hafi borið að með að taka suma þeirra inn, að skjóta hafi orðið á aukafundi, í því skyni, dag- inn áður en framboðsfrestur var útrunninn. Sumir þeirra manna, sem listann skipa, hafa áður átt sæti í bæjarstjórn, án þess séð verði að þeim hafi tekizt að marka þar nokkurt spor, er telja mætti að þýðingu gæti haft fyrir bæjar- félagið. Hefir þeim ekki auðnast að marka sínum eigin flokki bás innan bæjarstjórnarinnar, svo að naumast verður greint, hvað skilið hefir þessa menn frá fulltrúum K. E. A. í bæjarstjórninni, á síðast- liðnu kjörtímabili. Þó þessir menn yrðu sendir aft- ur til starfa í bæj arstj órninni, er naumast við betri árangri að bú- ast, þar mundi verða sama deyfð- in, sama aðgerðarleysið og smáskít- legt eiginhagsmunanudd, fáum eða engum til gagns og flokki þeirra til ófarnaðar. Það er því enganveginn að ófyr- irsynju, að ýmsir borgarar bæjar- ins hafa fundið sig knúða til að bera fram óháðan lista við kosn- ingar þær, sem í hönd fara. Listi þessi er að mestu skipaður flokks- hundnum Sjálfstæðismönnum, og nokkrum utanflokkamönnum, sem á undanförnum árum hafa í aðal- atriðum fylgt Sjálfstæðisflokknum að málum og hefðu kosið að geta starfað á svipaðan hátt áfram. Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélagsins kaus hins vegar að vísa á bug allri samvinnu við þessa aðila og hefir síðan elt þá með rógmælgi og rætni í blaði sínu. Getur full- trúaráð Sjálfstæðisfélagsins verið óhrætt um, að það fólk, sem að Borgaralistanum stendur, mun ekki leita þar húsa, sem það er óvelkomið. Skjaldborgarfélagið hefir, í sam- vinnu við ýmsa af mætustu borg- urum bæjarins, utan félagsins, stuðlað að því, að koma Borgara- listanum á framfæri og munu þeir menn, sem listann skipa, ef þeir hljóta kosningu, skoða sig sem fulltrúa allra stétta bæjarfélagsins og vinna starf sitt í þeim anda. Svo er fyrir að þakka, að at- vinnu- og fjármál bæjarins munu naumast verða sérstök vandræða- mál, meðan atvinna og afkoma bæjarbúa helzt svipuð því sem nú er. Munu því fulltrúar Borgara- listans fyrst um sinn beina at- hygli sinni að menningarmálun- um. Þeir munu beita áhrifum sín- um að því, að fegra og prýða bæ- inn og búa í haginn fyrir framtíð- ina, og skal sérstaklega getið eftir- taldra mála, Sjúkrahússmálið: —• Fulltrúar Borgaralistans eru óánægðir með aðgerðaleysi það, sem ríkir í því máli og telja það aðkallandi nauð- syn, að stöðvun verði ekki á bygg- ingu spítalans, hvað sem styrjald- arástandinu líður. Munu þeir því beita sér fyrir, að þegar verði haf- izt handa í því máli og haldið áfram, þar til byggingin er full- gerð. Elliheimili: — Allflestir bæir landsins hafa þegar komið á fót elliheimili, og hér í bæ hefir nokk- uð verið að máli þessu unnið. Kvenfélagið Framtíðin gekkst fyr- ir því undir forustu frú Gunnhild- ar Ryel, að safna fé í þessu skyni.en mun nú hafa lagt málið á hilluna í svip. Með því að hér virðist þurfa átak, sem ofvaxið er einstakling- um, viii listinn gera það að tillög- um sínum, að árlega verði varið verulegri fjárhæð úr bæjarsjóði í því skyni, að framkvæmdir geti hafizt eins fljótt og kringumstæð- ur frekast leyfa. Þó skal það skýrt fram tekið, að ekki er það tilætlun vor, að forustan verði á nokkurn hátt tekin úr höndum þeirra að- ila, sem til þessa hafa unnið að mannúðarmáli þessu af fórnfýsi og dugnaði. Kolageymslan við höfnina. ÓþriL' og óþægindi þau, sem bærinn hefir af koiabyngjunum við höfnina, setur að vorum dómi ómenningar- blæ á bæinn. Mundi það hvergi líðast að skella niður hundruðum tonna af kolum um 100 metrum frá hjarta bæjarins. Kolarykið í miðbænum er óþolandi og verður að hverfa. Virðist einsætt, að kola- geymslur þessar verði fluttar nið- ur á Oddeyrartanga, þar sem þær geta verið öllum að meinalausu. Ráðhústorg. Tilraun var gerð til að fegra og prýða hjarta bæjarins, Ráðhústorgið, fyrir nokkrum ár- um, er gróðursett voru þar 5 tré. Frekari aðgerðir strönduðu á hags- munastreitu nokkurra manna, en við það verður ekki unað. Við viljum ekki gera þennan blett, sem gæti verið fagur og bænum til

x

Kosningablað borgaralistans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kosningablað borgaralistans
https://timarit.is/publication/1901

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.