Kosningablað borgaralistans - 17.01.1942, Qupperneq 4
4
KOSNINGABLAÐ BORGARALXSTANS
Hver verður eísti maður
C-listans?
(Framh. af 1. síðu).
ið, að ég geri mér mjög far um að
, fræða bæjarbúa á hinu gagnstæða,
og vill sýna fram á fávitahátt minn
í þessum efnum. Ég vii ekki kann-
ast við, að ég hafi fullyrt nokkuð í
þessu efni. Hinsvegar virðist mér
við lesning laganna og eftir því
sem listarnir hafa verið úrskurð-
aðir, að næst liggi, að rétt sé, að
færa atkvæðamagn Sveins Tómas-
sonar saman á báðum listunum, ef
þeir koma manni að. Hitt dreg ég
mjög í vafa, að jafn glöggur og
gætinn maður og hrm. Pétur
Magnússon er, hafi leyft blaðinu
að hafa eftir sér hin ákveðnu,
gleiðletruðu orð: „að ekki sé heim-
iit að leggja saman atkvæði sama
manns á tveim listum“. En hvað
um slíkt, hvorki álit mitt né hrm.
Péturs Magnússonar er endanleg-
ur úrskurður í þessu efni. Það
verður stjórnarráðið, sem úrskurð-
ar um þetta og skýrir lögin. En
þetta argumentum ad hominem,
sem blaðið notar og telur í fávísi
sinni endanlegan úrskurð, verður
að crgu haft:
í lögunum um sveitarstjórnar-
kosningar, nr. 81/1936, eru engin
ákvæði um, hversu fara skuli, ef
sami maður er í kjöri af hálfu
fleiri en eins lista. Hinsvegar er í
þessum lögum mjög víða vísað til
laga um kosningar til Alþingis, nr.
18/1934, þannig, að þar sem ófull-
nægjandi ákvæði eru í lögum um
kosningar til sveitarstjórna, segir,
að fara skuli um það atriði eftir
lögum um kosningar til Alþingis.
Það er því mjög eðlileg lögskýring
að telja, að um kosningar til sveit-
arstjórna skuli yfirleitt fara eftir
lögum um kosningar til Alþingis,
ef þar finnast ákvæði, sem eiga við
þau tilfelli, er skýra þarf. Við
kosningar til Alþingis fara aðeins
í einu kjördæmi, Reykjavík, fram
hlutbundnar kosningar. í L 18/
1934, 29. gr. segir, að enginn megi
vera á fleiri listum í Reykjavík en
einum. Og ennfremur segir þar, að
yfirkjörstjórnin skuli nema nöfn
siíkra manna burt af listanum. Það
liggur því næst að álykta, að yfir-
kjörstjórninni hér hefði borið að
nema nafn Sveins Tómassonar
burtu bæði af B-listanum og C-
listanum.
Nú gerði yfirkjörstjórnin þetta
ekki, og kemur þá til athugunar,
hversu fara skuli um úrslit kosn-
inganna. í eldri lögum um kosn-
ingar tii sveitarstjórna var gengið
út frá, að setja mætti menn á svo
marga lista sem vildi. En löggjaf-
anum var það ljóst, að þá var þörf
á skýrum fyrirmælum um það,
hvernig reikna skyldi slíkum
mönnum atkvæði. í L 29/1929 var
svo fyrir mælt, að ef sami maður
fengi atkvæði á fleirum en einum
lista, er til greina kæmi eftir at-
kvæðamagni, þá skyldi leggja hin-
ar lægri atkvæðatölur hans við þá
atkvæðatölu, er hann hafði fengið
á þeim lista, er hann hafði mest á,
og sú samanlagða atkvæðatala
teljast honum þar að fuliu, en
nafn hans strikað út af hinum list-
unum.
Þar sem nú yfirkjörstjórnin hef-
ir valið þann kostinn að leyfa nafni
Sveins Tómassonar að standa á
tveimur listum í stað þess að strika
hann út af þeim báðum, og þannig
farið í því atriði eftir eldri kosn-
ingalögum, þá leiðir af því, að fara
ber eftir eldri kosningalöguni,
einnig um útreikning á atkvæða-
magni, enda er það á allan hátt
eðlilegast úr því sem komið er. Ef
aðstandendur tveggja lista endi-
lega vilja koma Sveini Tómassyni
í bæjarstjórn, hvaða heimild er þá
til að stela af honum atkvæðum
annars listans eða ræna kjósendur
rétti sínum til að velja menn i
bæjarstjórn?
En nú vil ég spyrja íslending:
Hvernig fer, ef sami maður er sett-
ur svo ofarlega á tvo eða fleiri
lista, að hann nái kosningu á þeim
báðum eða öllum? Fráleitt er að
slíkur maður geti myndað nema
eina persónu í bæjarstjórninni. En
af hverjum listanum á þá maður-
inn að teljast kosinn? Nú mun ís-
lendingur vilja svara því, að mað-
urinn eigi að teljast kosinn af þeim
lista, sem hann hefir gefið sam-
þykki sitt til að vera settur á. En
þá ahugast, í fyrsta lagi, að hér er
um skyldustarf að ræða, og kjós-
endum er heimilt inhan vissra tak-
marka að bjóða hvern þann fram
sem bæjarfulltrúaefni, er þeim
sýnist. Kjósendur eiga því réttinn,
en ekki sá sem er kosinn. í öðru
lagi getur farið svo, að slíkur mað-
ur vilji alls ekki segja tii um, á
hverjum listanum hann vilji heizt
teljast kosinn. Öll rök renna því
undir það sama. Maðurinn verður
að teljast kosinn á einum lista, og
gömlu, gildu reglunni verður að
fylgja, að hann teljist kosinn á
þeim lista, sem hann hefir flest at-
kvæði á, og atkvæðin sem hann
fær á öðrum listum færast yfir á
þann lista og teljast honum þar.
Sveitarstjórnarkosningar og ai-
þingiskosningar eru ekki sam-
bærilegar í þessu tilfelli, því að
til Alþingis er engan hægt að
kjósa, nema þann, sem býður slg
sjálfur fram, og alþingisseta er
ekki skyldustarf, en til sveitar-
stjórna bjóða menn sig ekki fram,
en kjósendur bjóða fram þá, sem
E-Kistinn
(Borg'aralislinn),
framboðslisti við bæjarstjórnarkosningar hjer í bæ
25. þ. m., er þannig skipaður:
1. Brynleifur Tobiasson, menntaskólakennari.
2. Jón Sveinsson, fyrrv. bæjarstjóri.
3. Helgi Pálsson, útgerðarmaður.
4. Svafar Guðmundsson, bankastjóri.
5. Guðmundur Guðmundsson, skipstjóri.
6. Jón Geirsson, læknir.
7. Kristján Nói Kristjánsson, skipasmiður.
8. Jón E. Sigurðsson, framkvæmdarstjóri.
9. Kristján Ásgeirsson, skipstjóri.
10. Arni Ólafsson, skrifari.
11. Eiríkur Einarsson, verkamaður.
12. Carl D. Tulinius, útgerðarmaður.
13. Gísli Jóhannsson, stýrimaður.
14. Gunnar S. Hafdal, innheimtumaður.
15. Sveinn Frímannsson, skipstjóri
16. Gustav Andersen, málari.
17. Tryggvi Haligrímsson, skipstjóri.
18. Gísli E. Edvaldsson, rakarameistari.
19. Elís Eyjólfsson, sjómaður.
20. Valdemar Steffensen, læknir.
21. Jón Guðlaugsson, sparisjóðsforstjóri.
22. Pjetur A, Ólafsson, konsúll.
Fyrsti maður listans hefir verið bæjaríulltrúi 9 ár,
og varabæjarfulltrúi 3 ár, annar maður bæjarf.tr. 4
ár, tii vara 4 ár og bæjarstjóri 15 ár, þriðji maður
hefir stundað útgerð og verzlun og er nú formaður
Fiskideildar NorðLfjórðungs og fulltrúi hennar á að-
alþing Fiskifjelags íslands. Fjórði maður hefir verið
rúml. 6 ár bankastjóri Útvegsbankans hjer, um skeið
formaður í fulltrúaráði Útvegsbanka íslands h.f. og í
stjórn Búnaðarfjelags íslands. Fimmti maður er skip-
stjóri og útgerðarmaður og nú formaður Skipstjóra-
fjelags Norðlendinga. Sjötti maður er, eins og hinn
þriðji, borinn og barnfæddur í bænum, áhugamaður
um landbúnað og aðrar framkvæmdir.
þeir vilja hafa kosna, og það er
skyldustarfi að sitja í bæjarstjórn.
Annars er sennilega óþarfi að
vera að ræða þetta mál mikið. Að-
almennirnir, sem standa að hinum
svonefnda — „Sjálfstæðislista“ —
þekkja handtökin sín. Ef álykta
má af fyrri reynslu, munu þeir
sjá svo um, að Sveinn Tómasson
komi ekki með svo mikið atkvæða-
magn út úr kosningunum á C-
listanum, að hætta sé á, að hann
nái kosningu ,enda þótt þau at-
kvæði, sem hann fær á Framsókn-
arlistanum, bætist við atkvæði
hans á C-listanum. Og enn mun
vera svo náið samband á milli
lista Framsóknar og hins svo-
nefnda „Sjálfstæðislista", að ekki
muni þeir herrar, sem að Fram-
sóknarlistanum standa, spilla fyrir
því, að atkvæðamagn Sveins
minnki.
En verði kosningin undirhyggju-
laus af beggja hálfu og laus við
útstrikanir og ódrengskap, fær
Sveinn 6/22 úr atkvæði á Fram-
sóknarlistanum og 17/22 úr at-
kvæði á C-listanum, og með því að
færa þau atkvæði saman á þann
listann, þar sem hann hefir fleiri
atkvæði, hlýtur niðurstaðan að
verða sú, að Sveinn Tómasson
verður kosinn sem langsamlega
fyrsti maður C-listans.
J.Sv.