Tíminn - 01.04.1977, Side 3
TÍMINN
stækkar
• í byrjun febrúar var ákveðið
að stækka Tímann úr 16 síðum
daglega í 24 síður a.m.k. þrisvar
í viku, og hefur blaðið verið 120
síður á viku, undanfarnar vik-
ur.
• Jafnframt stækkuninni hefur
efni blaðsins verið gert fjöl-
breyttara, svo allir finni þar
eitthvað við sitt hæfi.
• Áskriftargjald Tímans er 165
krónur á mánuði, en auk aðal-
blaðsins fá fastir kaupendur
Tímans sunnudagslesbók, sem
er 24 síður um hverja helgi,
Islendingaþætti Tímans, 32 síð-
ur í lesbókarbroti, einu sinni til
þrisvar í mánuði.
• Þá er ótalið þriðja fylgiritið,
sem kemur reglulega út, en það
er sérprentuð útvarps- og sjón-
varpsdagskrá fyrir eina viku í
einu, með umsögn og gagn-
rýni um sjónvarpsefni. Fylgir
hún blaðinu á föstudögum.
• í hverjum mánuði fá því fast-
ir kaupendur blaðsins 500 síður
af Tímanum, og til viðbótar
sunnudagslesbókina samtals 96
síður, íslendingaþætti 32—64
síður og fjórar til fimm sjón-
varps- og útvarpsdagskrá fyrir
165 krónur. Það verður ekki
annað sagt, en þetta sé mikið
lesefni fyrir aðeins 165 krónur,
og að það sé sanngjarnt verð
fyrir þetta.
• Tíminn hefur á undanförn-
um árum, gefið út aukablöð, af
sérstöku tilefni, og mun áfram
haldið á þeirri braut til viðbót-
ar annarri stækkun blaðsins.
• Þetta rit, „Þau, sem skrifa
Tímann“ á að kynna þá, sem
skrifa blaðið á degi hverjum, en
allt efni blaðsins, jafnt forustu-
greinar, fréttir, greinar og þætt-
ir er merkt höfundarnöfnum, og
í þessu riti fá lesendur ofurlitl-
ar upplýsingar um þá sem
skrifa Tímann.
Gerist áskrifendur
Áskriftarsíminn er 12323
T f M I N N - Þau, sem skrifa Tímann