Tíminn - 01.04.1977, Qupperneq 21
Umferðartrygging Tímans er algjör nýjung hér á landi. Með sérstökum samningi
við Samvinnutryggingar eru fastir áskrifendur á aldrinum 16—75 ára tryggðir fyrir
óhöppum í umfeðinni þeim að kostnaðarlausu.
Skilmálar umferðartryggingarinnar eru þessir:
1. Áskrifendur Tímans eru tryggðir fyrir slys-
um í umferðinni og á ferðalögum innan-
lands samkvæmt nánari ákvæðum, sem til-
greind eru hér á eftir.
2. Tryggingin er áskrifendum að kostnaðar-
lausu og bundin við þann einstakling, sem
áskriftin er stíluð á.
3. Gildistími tryggingarinnar er hinn sami og
áskriftar.
4. Fyrir nýja áskrifendur gildir tryggingin frá
kl. 12 á hádegi daginn eftir að þeir gerast
áskrifendur. Tryggingunni lýkur kl. 12 á
hádegi þann dag, sem áskrift rennur út.
Þótt áskrift verki aftur í tímann, gerir
tryggingin það ekki.
5. Tryggingarupphæð er sem hér segir:
Örorkubætur allt að kr. 60 þúsund.
Ðánarbætur kr. 30 þúsund.
Bætur eru þó takmarkaðar við kr. 1.000.
000,44 samanlagt vegna eins og sama slyss
eða tjónsatburðar.
6. Siys ber að tilkynna skriflega til skrifstofu
Tímans, Bankastræti 7 eða Samvinnutrygg-
T f M I N N - Þau, sem skrifa Timann
inga, eins fljótt og unnt er, þó eigi síðar en
innan 14 daga frá því slysið varð-
7. Bótaskyld eru þau slys, sem áskrifendur
verða fyrir af völdum samgöngutækja á
götum eða vegum úti, þ. m. t. slys, sem
áskrifendur verða fyrir við stjórn sam-
göngutækjanna (sbr. þó 9. tölulið). Trygg-
ingin bætir slys hvort sem áskrifendur eru
fótgangandi, á reiðhjóli, vélhjóli, mótor-
hjóli, dráttarvél, í bifreið (þ. m. t. strætis-
vagnar og áætlunarbifreiðir), svo og á hest-
baki. Ennfremur eru bætt slys, sem vegfar-
endur verða fyrir og stafa af hrapi flugvél-
ar, svo og slys, sem áskrifandinn verður
fyrir sem farþegi í venjulegu farþegaflugi,
og farþegi með skipum eða bátum milli
hafna.
8. Tryggingin gildir fyrir áskrifendur frá 16
—75 ára aldurs-
9. Tryggingin tekur ekki til slysa sem áskrif-
endur verða fyrir við störf 1 samgöngu-
tækjum eða í sambandi við rekstur þeirra.
10. Að öðru leyti en að framan greinir gilda
hinir almennu slysaskiimáiar Sambands
slysatryggjenda fyrir tryggingu þessa, að
svo miklu leyti sem við getur átt.
tl