Bæjarblaðið Jökull - 04.05.2023, Síða 2
Fyrstu rafmagnsvörubílarnir eru
komnir til Íslands og eru Ragnar og
Ásgeir meðal þeirra fyrirtækja sem
fengu slíkan bíl afhentan. Bílarn-
ir voru til sýnis hjá Velti, atvinnu-
stækjasviði Volvo hjá Brimborg
laugardaginn 29. apríl. Bílarnir
eru allir frá vörubílaframleiðand-
anum Volvo Trucks en 14 rafvöru-
bílar komu til landsins, þeir verða
svo afhentir til 9 stórra fyrirtækja
á landinu, þar á meðal Ragnars
og Ásgeirs.
Í tilkynningu frá Brimborg seg-
ir að rafmagnsvörubílarnir marki
tímamót í orkuskiptum sem ryðja
braut fyrir sjálfbæra þungaflutn-
inga á Íslandi með það að mark-
miði að allir þungaflutningar verði
á íslensku rafmagni. Í raforkuspá
Orkustofnunar sem gefin var út í
mánuðinum er gert ráð fyrir að
öll nýskráð ökutæki, þar á meðal
vörubílar og rútur, verði rafknúin
fyrir árið 2040. SJ
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur
frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði,
Blaðið kemur út vikulega.
Upplag: 500
Áb.maður: Jóhannes Ólafsson
Prentun: Steinprent ehf.
Sandholt 22a, Ólafsvík
355 Snæfellsbæ
Netfang: steinprent@simnet.is
Sími: 436 1617
Í síðasta tölublaði Jökuls var
viðtal við þau Ólínu og Þórð en
þau hafa rekið Söluskála ÓK í 27
ár. Sunnudaginn 30. apríl stóðu
þau sína síðustu vakt á bak við
afgreiðsluborðið. Þegar greinin
var birt var ekki vitað hver fram-
tíð Söluskálans yrði en nú hafa
nýir eigendur tekið við keflinu.
Þau Júníana Björg Óttarsdótt-
ir og Jóhann Pétursson hafa fest
kaup á rekstrinum. Söluskálinn
mun opna aftur 4. maí klukkan
9:00 og verða engar breytingar á
starfseminni til að byrja með enda
óþarfi að breyta því sem vel hefur
verið gert. Með tímanum vonast
þau til að innleiða nýjungar og
setja sitt mark á reksturinn. Sam-
kvæmt Júnu og Jóa var ákvörðun-
in um að kaupa reksturinn óvænt
og hafði stuttan aðdraganda. Júna
rak verslunina Blómsturvelli
með fjölskyldu sinni um árabil
við góðan orðstír og því greini-
lega ekki svo auðvelt að losna við
verslunargenin. Segjast þau taka
við góðu búi og að fyrri eigend-
ur hafi sinnt samfélaginu mjög
vel undanfarin ár. Markmiðið er
að viðhalda þeirri þjónustu eft-
ir bestu getu. Vonast þau til að
bæjarbúar taki vel í breytinguna
og haldi tryggð við söluskálann
enda byggist reksturinn aðallega
á heimamönnum.
JJ
Nýir eigendur Söluskála ÓK
Ragnar og Ásgeir fá rafmagnsvörubíl