Bæjarblaðið Jökull - 04.05.2023, Blaðsíða 3
Útgerðin opnaði í Pakkhúsinu
í Ólafsvík árið 2019 og hafa Rut
Ragnarsdóttir og Heimir Berg Vil-
hjálmsson rekið verslunina með
góðum árangri síðustu fjögur ár-
in. Nú eru komin kaflaskil í rekstri
verslunarinnar og tóku þau Rut og
Heimir ákvörðun um að endurnýja
ekki leigusamning verslunarinnar
við Pakkhúsið og loka Útgerðinni í
þeirri mynd sem hún hefur verið.
Á sama tíma og leigusamningurinn
við núverandi húsnæði verslunar-
innar var að renna út datt óvænt
fjárfestingatækifæri í hendurnar á
þeim. Tryggir viðskiptavinir þurfa
því ekki að örvænta því Útgerðin
mun opna í nýju húsnæði á Hell-
issandi fimmtudaginn 4. maí. Eru
Rut og Heimir lukkuleg með þess
ákvörðun en nýja húsnæðið býður
upp á frekari möguleika til stækk-
unar sem þau eru þegar byrjuð að
teikna upp og hlakka til að kynna til
leiks. Mikil gróska í menningar- og
ferðaþjónustu á Hellissandi er um
þessar mundir og segist Rut sann-
færð um að Útgerðin vaxi og dafni
á næstu árum í nýju húsnæði. Að-
spurð segir Rut það ekki hafa ver-
ið á stefnuskrá Útgerðarinnar að
flytja á Hellissand enda leið þeim
vel í Pakkhúsinu en þegar tækifærið
kom upp og þau fóru að meta stöð-
una hentaði betur að reka verslun-
ina á Hellissandi. Rut og Heimir
vinna bæði þar og eiga heimili þar,
þannig verður einfaldara að halda
utan um reksturinn samhliða fjöl-
skyldulífinu og þetta verður meira
þeirra allra. Undanfarnar vikur hafa
þau staðið í framkvæmdum í gamla
pósthúsinu á Hellissandi sem
stendur við Klettsbúð 7 og undir-
búið það fyrir opnun verslunar Út-
gerðarinnar. Þegar þau fengu hús-
næðið afhent var þar hólfað skrif-
stofurými svo þau hafa eytt löngum
dögum í að koma öllu til og enn á
eftir að fínpússa ýmislegt eftir opn-
un. Þau hafa mikið unnið í húsnæð-
inu sjálf með dyggri aðstoð foreldra
Rutar. Opnunarpartý verður frá 17
til 20 fimmtudaginn 4. maí þar sem
léttar veitingar verða í boði og við-
skiptavinum gefst tækifæri til að
skoða nýja verslun Útgerðarinnar.
Rut segir áherslur verslunarinnar
verða þær sömu, góð þjónusta og
íslenskt hönnun í bland við aðr-
ar sérvaldar vörur. Með sumrinu
koma inn fjölmörg ný vörumerki en
nýjasta viðbótin verður hins vegar
lítil og krúttleg vínstofa. Vínstof-
an kallar að sjálfsögðu á einhverjar
breytingar á opnunartíma og annað
en það verður nánast auglýst síðar.
Spennandi tímar eru framundan í
Útgerðinni og hlakka þau til að sjá
sem flesta við opnun Útgerðarinn-
ar í nýju húsnæði 4. maí.
SJ
Á sumardaginn fyrsta héldu
konur úr Lionsklúbbnum Rán
sitt árlega bingó á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Jaðri. Mættu
Lionskonur með fangið fullt af
glæsilegum vinningum líkt og
venja er fyrir. Mikil stemming var
í bingóinu og létu þátttakendur
ekki keppnisskapið vanta. Þegar
allar raðir höfðu verið spilaðar
buðu þær upp á gómsætar kaffi-
veitingar. Beðið er eftir bingóinu
með eftirvæntingu á hverju ári og
höfðu allir gaman af. Þakka íbúar
og starfsfólk á Jaðri fyrir ánægju-
lega og notalega stund.
JJ
Útgerðin opnar
í nýju húsnæði
Bingó á Jaðri
Munið getraunastarfið í
Átthagastofunni á laugardögum
!
!
!"#$%&'())*+,$-(##&./&)$0&12&34533&
&
&
67&0&89:(&9-&;<(**&=&1>##+##(&=&)(22(&&
12/&?@533&9-&?A533&
&
&
B2>11+)&*(2&$:&*$1$&=&)C*(&D11+%&&
&
EF%&1G<:H$&
IJ#$&9-&IC(&
&
&
&
KI!LLMN&
O2$'78%$+*&PQ&&
&
&
&
&
&
&
&
&
&
&
&
&