Bæjarblaðið Jökull - 11.05.2023, Page 4
Ársreikningur Snæfellsbæjar
var samþykktur samhljóða á bæj-
arstjórnarfundi þann 4. maí eftir
síðari umræðu.
Rekstur Snæfellsbæjar kom
mun betur út en fjárhagsáætlun
hafði gert ráð fyrir og var jákvæð-
ur um 377,4 m.kr.. Útgjöld voru
nánast á pari við fjárhagsáætlun
og það er eftirtektarvert að for-
stöðumenn stofnana Snæfells-
bæjar eru að skila rekstri sinna
stofnana enn eitt árið undir áætl-
un. Þetta er mjög ánægjulegt og
eiga forstöðumenn hrós skilið
fyrir hversu vel þeir reka sínar
stofnanir og hversu vel þeir eru að
fylgjast með fjárhag sinna eininga.
Helstu lykiltölur ársreiknings
eru taldar hér:
Rekstrartekjur sveitarfélags-
ins á árinu námu um 3.417 millj.
króna samkvæmt samantekn-
um rekstrarreikningi fyrir A- og
B-hluta en fjárhagsáætlun gerði
ráð fyrir rekstrartekjum um 2.918
millj. króna. Rekstrartekjur A-
hluta námu um 2.644 millj. króna
en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir
rekstrartekjum um 2.319 millj.
króna.
Rekstrarniðurstaða sveitarfé-
lagsins samkvæmt samanteknum
rekstrarreikningi A- og B-hluta var
jákvæð um 377,4 millj. króna en
samkvæmt fjárhagsáætlun var gert
ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á
36,5 millj. króna. Rekstrarafkom-
an varð því töluvert betri en áætl-
un gerði ráð fyrir, eða sem nem-
ur 340,9 millj. króna. Rekstrar-
niðurstaða A-hluta var jákvæð
að fjárhæð 206,4 millj. króna en
fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir af-
komu upp á 155 þús. króna. Af-
koma A-hluta varð því betri sem
nemur 206,2 millj. króna. Þessu
fjármagni hefur þegar verið varið
til fjárfestinga í innviðum, niður-
greiðslu skulda og þjónustu við
bæjarbúa.
Laun og launatengd gjöld
sveitarfélagsins námu um 1.723,6
milljónum króna en starfsmanna-
fjöldi sveitarfélagsins nam 147
stöðugildum í árslok.
Veltufé frá rekstri var 443,1
millj. króna og veltufjárhlutfall
er 0,91 hjá A-hluta og hefur farið
hækkandi undanfarin ár. Veltufé
frá rekstri í samanteknum rekstr-
arreikningi A- og B-hluta var 696,7
í árslok 2022 og veltufjárhlutfall
samstæðunnar er 1,48.
Handbært frá rekstri var 395,7
millj. króna hjá A-hluta en 644,9
millj. hjá samanteknum rekstr-
arreikningi A- og B-hluta. Þessi
tala gefur vísbendingar um hæfni
Snæfellsbæjar til að greiða skuld-
ir og standa undir nauðsynlegum
fjárfestingum á árinu.
Heildareignir bæjarsjóðs
námu um 5.369,8 millj. króna
og heildareignir sveitarfélagsins
í samanteknum ársreikningi um
6.861,5 millj. króna í árslok 2022.
Heildarskuldir bæjarsjóðs
námu um 1.956,6 millj. króna
og í samanteknum ársreikningi
um 2.096,6 millj. króna, og hækk-
uðu þar með milli ára um 20 millj.
á nafnvirði, en lækkuðu að raun-
virði. Þar spilar verðbólga ársins
2022 inn í.
Snæfellsbær hefur verið að
greiða niður lán og minnka skuld-
ir undanfarin ár, og á árinu 2022
voru engin ný lán tekin, þrátt fyr-
ir töluverðar fjárfestingar. Hins
vegar var verðbólga töluverð, eins
og áður segir, og jukust því skuld-
ir Snæfellsbæjar að nafnvirði ör-
lítið sem því nam á árinu 2022. Þó
lækkuðu skuldirnar að raunvirði
milli ára. Skuldir Snæfellsbæjar
við lánastofnanir lækkuðu milli
ára, eða um 41,9 millj. hjá sam-
anteknum reikningi A- og B-hluta.
Skuldahlutfall Snæfellsbæjar
er lágt, eða 74% hjá A-hluta og
61,36% hjá samanteknum reikn-
ingi A- og B-hluta. Ef notað er
skuldaviðmið skv. reglum um fjár-
hagsleg viðmið sveitarfélaga, þá
fer prósentan niður í 49,55% fyr-
ir A-hluta og 37,4% fyrir samstæð-
una. Snæfellsbær hefur því tölu-
vert svigrúm til lántöku ef kem-
ur til einhverra stærri tekjufalla í
framtíðinni. Skv. 64. gr. 2. málsgr.
sveitarstjórnarlaga á þetta hlutfall
ekki að vera hærra en 150%.
Eigið fé bæjarsjóðs nam um
3.413,2 millj. króna og eigið fé
í samanteknum reikningsskilum
nam um 4.764,9 millj. króna í
árslok 2022. Eiginfjárhlutfall er
63,56% á árinu 2022 hjá A-hluta
en var 62,01% árið áður. Eiginfjár-
hlutfall A- og B-hluta er 69,44% í
lok árs 2022 en var 67,56% árið
áður. Almennt er talið að 50%
eiginfjárhlutfall hjá sveitarfélagi
sé ásættanlegt.
Miklar fjárfestingar voru á ár-
inu og fjárfesti Snæfellsbær fyr-
ir 424,9 milljónir í varanlegum
rekstrarfjármunum.
Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar
verður því að teljast afar góð.
Afkoma Snæfellsbæjar jákvæð um 377 milljónir
Eygló Kristjánsdóttir frá Stóra-
-Kambi gengur þessa dagana Jak-
obsveginn til styrktar Krabba-
meinsfélagi Snæfellsness. Hún
hóf göngu sína í Sain Jean Pied de
Port í Frakklandi og mun ganga
til Santiago de Compostela á
Spáni en þessi ganga tekur iðu-
lega um 35 daga. Í upphafi vik-
unnar hafði Eygló lokið við um
það bil þriðjung leiðarinnar sem
er í heildina um 800 km. Hefur
hún lengi átt sér þann draum að
ganga Jakobsveginn og ákvað nú
að slá tvær flugur í einu höggi,
láta drauminn rætast og styrkja
gott málefni í leiðinni eftir að
hafa sjálf sigrast á krabbameini
sem hún greindist með árið
2019. Hægt er að fylgjast með
styrktarsíðu Eyglóar á Facebook
undir nafninu Jakobsvegur-
inn, styrktarganga Eyglóar fyrir
Krabbameinsfélag Snæfellsness,
þar sem hún birtir ferðasögur,
uppfærslur og myndir.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að
styrkja:
Krabbameinsfélag Snæfellsness
Kt.650107-0200
Rkn. 0133-15-004116
Eygló gengur
Jakobsveginn