Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 17.05.2023, Blaðsíða 4

Bæjarblaðið Jökull - 17.05.2023, Blaðsíða 4
Mikil uppbygging hefur verið við sundlaugina í Ólafsvík undan- farin ár og er ekkert lát á. Nú er búið að festa kaup á glæsilegri rennibraut sem mun bætast við afþreyingu á útisvæði húsnæð- isins. Rennibrautin sem kemur frá framleiðandanum Polin Wa- terparks er um sjö metrar á hæð og 54 metrar að lengd. Hún er rauð að lit sem fellur vel að hús- næðinu. Jarðvegsvinna og fram- kvæmdir fyrir undirstöður renni- brautarinnar eru þegar hafnar og stefnt er að klára uppsetningu í sumar. Ef allt gengur vel þá munu forsvarsmenn hleypa vatni á hana í byrjun júlí. JJ Okkar strákar í Víkingi skruppu austur að Egilsstöðum síðasta laugardag og spiluðu við Hött/ Huginn. Gerfigrasið á vellinum hjá þeim er víst með því versta, sem leikið er á í deildunum, og má segja að það geti jafnvel ver- ið hættulegt ef menn eru ekki rétt skóaðir. Leikurinn bar þess greini- lega merki og lauk með marka- lausu jafntefli. Getulega séð voru Víkingarn- ir betri, þó að það dyggði ekki til sigurs á heimamönnum. Eitt stig er þó betra en ekkert, því ef liðið vinnur heimaleikina sína og gerir jafntefli á útivöllum er uppskeran 44 stig, sem hefði, til dæmis farið langt með að tryggja sig upp um deild í fyrra. Þessi leikur verður seint verð- launaður fyrir skemmtanagildi, að sögn þeirra, sem voru á staðn- um, svo fátt er um sjálfan leikinn að segja, annað en að hann stóð yfir í 90 mínútur auk uppbótar- tíma vegna tafa. ÓHS Stór rennibraut bætist við í sundlauginni Bragðdaufur leikur á slæmum velli Það má segja að skógarþröstur- inn á myndinni sé þrjóskur en hans tími til hreiðurgerðar er þessa dagana. Hafði hann bú- ið sér til hreiður í malarvagni tvisvar sinnum á nokkrum klukkutímum og í vörubíl jafn oft, gerði hann því þessi fjög- ur hreiður á innan við tveimur sólarhringum. Var hreiðrið hans fjarlægt svo hann kæmist ekki lengra með hreiðrið og fyndi sér annan stað því bæði vörubíll- inn og vagninn eru í notkunn og því ekki gott að hann væri búinn að koma sér upp dvalar- stað sem hyrfi svo einn daginn. Virkaði þetta og gafst hann upp og er farinn einhvað annað von- andi þar sem ekki eru vinnuvél- ar í notkun. ÞA Öflugur þröstur í hreiðurgerð Starfsmaður óskast í Smiðjuna Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf í Smiðjunni í Ólafsvík, dagþjónustu fyrir fólk með skerta starfsgetu. • Um er að ræða 100% stöðugildi á dagvinnutíma. • Félagsliða- stuðningsfulltrúanám eða annað nám og reynsla er nýtist í starfinu æskilegt en þó ekki skilyrði. • Smiðjan er reyklaus vinnustaður • Laun skv. kjarasamningi sveitarfélaganna og viðkomandi stéttarfélags. • Umsækjandi þarf að geta hafið störf frá og með 16.ágúst n.k. • Starfið er tímabundið vegna barneignarleyfis. Frekari upplýsingar veitir Þórheiður E. Sigurðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi Smiðjunnar. Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf ásamt sakavottorði og nöfnum 2ja umsagnaraðila berist á skrifstofu Smiðjunnar Ólafsbraut 19, 355 Ólafsvík eða á netfangið thorheidur@fssf.is Umsóknareyðublöð má fá á heimasíðunni www.fssf.is Umsóknarfrestur er til 22. maí 2023

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.