Bæjarblaðið Jökull - 17.05.2023, Blaðsíða 5
Nú er skólaárið að líða að lok-
um og sumarið að taka við. Í
Fjölbrautaskóla Snæfellinga hef-
ur hefðbundið vorstarf staðið
yfir sem eru fastir liðir við lok
skólagöngu stúdenta. Útskrift-
arhátíð Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga verður haldin föstudaginn
26. maí í hátíðarsal skólans í
Grundarfirði en nýverið kláruðu
nemendur á stúdentsbrautum
áfangann lokaverkefni. Þennan
áfanga taka útskriftarnemendur
á sinni síðustu önn við skólann
og fá þau að velja sér viðfangsefni
sjálf og skipuleggja sig í samráði
við leiðbeinendur. Iðulega velja
nemendur efni tengt sinni braut,
þó þar sé stundum undantekn-
ing á, og voru verkefnin í ár fjöl-
breytt og áhugaverð. Á meðal
lokaverkefnanna voru hlaðvörp,
kennslumyndbönd, heimasíð-
ur, ritgerðir, málverk, súrealískt
listaverk, líkön úr málmi, taflborð
og rafmagnsgítar. Lokaverkefnin
kynntu nemendur svo í matsal
skólans fyrir samnemendum og
gestum. Þann 11. maí klæddi út-
skriftarhópurinn sig svo upp og
fagnaði því að settum markmiðum
væri náð. Dimmiteringin fór fram
með mikilli dagskrá hjá hópnum
enda vaninn ekki að lítið fari fyr-
ir stúdentum á degi sem þess-
um. Starfsfólk fjölbrautarskólans
bauð svo hópnum í vöfflur á kaffi-
stofu kennara en er það skemmti-
leg hefð sem gerir kveðjustundina
aðeins persónulegri.
SJ
Lokaverkefni og dimmitering í FSN
verður haldinn þriðjudaginn 23. maí kl. 18.00
í fundarsal Hótel Fransikus að Austurgötu 7 í Stykkishólmi.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Breytingar á lögum félagsins
Reglugerðarbreytingar
Önnur mál
Þeir sem óska eftir fari á fundinn hafi samband við skrifstofu félagsins
í síma 588 9191 eða netfang verks@verks.is.
Aðalfundur Verkalýðsfélags Snæfellinga
- Bílaviðgerðir
- Skipaþjónusta
- Almenn suðuvinna
- Smurþjónusta
- Smábátaþjónusta
- Dekkjaverkstæði
vegr@vegr.is vegr.is
S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður