Bæjarblaðið Jökull - 17.05.2023, Side 7
Við bjóðum upp á
alhliða bílaviðgerðir,
dekkjaskipti og smurþjónustu.
Tímapantanir í síma 436-1111
Sunddeild Víkings/Reynis tók
þátt í vel heppnuðu sundmóti
á Kleppjárnsreykjum um liðna
helgi. Víkingur/Reynir og UM-
FR héldu mótið í sameiningu
og stungu 60 keppendur sér til
sunds. 13 iðkendur úr Víking/
Reyni tóku þátt og stóðu þau sig
öll með prýði.
JJ
Það er nóg að gera hjá hafnar-
vörðum og þeim aðilum sem sjá
um landanir í höfnum Snæfells-
bæjar þessa dagana en dagana 8.
til 14. maí voru landanir í höfnum
Snæfellsbæjar alls 497 og komu
á land í þeim 1370 tonn. Í Rifs-
höfn var landað 719 tonnum í
152 löndunum. Í Ólafsvíkurhöfn
493 tonnum í 210 löndunum og
á Arnarstapa 158 tonnum í 135
löndunum. Má af þessu sjá að
hafnirnar eru líflegar þessa dag-
ana og setja handfæra bátarnir
svip sinn á þær en 45 handfæra
bátar lönduðu á Arnarstapa þessa
daga og lönduðu þeir 124 tonn-
um í 131 löndun. 40 handfæra
bátar lönduðu í Rifshöfn þessa
sömu daga og lönduðu þeir 93
tonnum í 108 löndunum. 56
handfæra bátar lönduðu í Ólafs-
víkurhöfn og lönduðu þeir 140
tonnum í 168 löndunum. Einn
grásleppu bátur Rán SH landaði 9
tonnum í 6 löndunum. Hjá drag-
nóta bátunum landaði Bárður SH
107 tonnum í 4, Saxhamar SH 72
tonnum í 3, Ólafur Bjarnason SH
59 tonnum í 4, Magnús SH 47
tonnum í 3, Gunnar Bjarnason
SH 45 tonnum í 4, Sveinbjörn Jak-
obsson SH 44 tonnum í 3, Matth-
ías SH 42 tonnum í 3, Rifsari SH
42 tonnum í 3, Esjar SH 41 tonni í
3, Egill SH 27 tonnum í 2 og Guð-
mundur Jensson SH 9 tonnum í
1 löndun. Hjá litlu línu bátun-
um landaði Bíldsey SH 71 tonni
í 5, Kristinn HU 57 tonnum í 6,
Tryggvi Eðvarðs SH 57 tonnum í
6, Lilja SH 42 tonnum í 6, Stakk-
hamar SH 36 tonnum í 4, Brynja
SH 22 tonnum í 5, Þerna SH 15
tonnum í 5, Sverrir SH 12 tonn-
um í 4, Gullhólmi SH 11 tonnum
í 1, Tryggvi Eðvarðs SH 9 tonnum
í 1 löndun. Hjá stóru línu bátun-
um landaði Rifsnes SH 69 tonn-
um í 1 löndun. Bárður SH er á
netaveiðum og landaði hann 50
tonnum í 6 löndunum.
Þessa sömu daga lönduðu
20 handfæra bátar í Grundar-
fjarðarhöfn 49 tonnum í 65
löndunum. Tveir botnvörpu bát-
ar lönduðu einnig Hringur SH
102 tonnum í 2 og Farsæll SH 69
tonnum í einni löndun. Alls var
landað í Grundarfjarðarhöfn 220
tonnum í 68 löndunum.
ÞA
Vinamót UMFR
og Víkings/Reynis
Aflafréttir
Jökull Bæjarblað
steinprent@simnet.is
436 1617