Bæjarblaðið Jökull - 29.06.2023, Blaðsíða 3
Römpum upp Ísland er verk-
efni á landsvísu sem ætlað er að
auka aðgengi hreyfihamlaðra að
þjónustu, verslunum og veitinga-
húsum á Íslandi. Hvatamaður ver-
kefnisins er Haraldur Þorleifs-
son athafnamaður og stofnandi
hönnunar fyrirtækisins Ueno.
Glöggir íbúar tóku eflaust eftir
framkvæmdum við Ólafsbraut 19
í Ólafsvík þar sem öflugur hópur
manna frá Römpum upp Ísland
bættu aðgengi að þjónustufyrir-
tækjum í húsnæðinu. Römpum
upp Ísland hefur einsett sér að
gera 1500 veitingastaði og versl-
anir í einkaeigu aðgengilegra
hreyfihömluðum og er stefnan
sett á að verkinu ljúki á lands-
vísu fyrir lok árs 2023. Rampa-
átakið hófst í mars 2022 og var
þá markmiðið að byggja 100
rampa á einu ári, nú hefur ver-
kefnið undið heldur betur upp
á sig og í nóvember 2022 var til-
kynnt að markmiðið væri komið
upp í 1500. Verkefnið er unnið
í góðri samvinnu milli Römp-
um upp Ísland, sveitarfélaga,
húseigenda og íbúa sem skipta
með sér kostnaði og verkum. Á
þessari ferð sinni um Snæfells-
nesið rampaði hópurinn frá ver-
kefninu upp fimm þjónustufyr-
irtæki við Ólafsbraut 19 í Ólafs-
vík, það voru Sker veitingastað-
ur, Verkalýðsfélags Snæfellinga,
Pastel hárstofa, Voot og húsnæði
Félags- og skólaþjónustu Snæ-
fellinga. Ramparnir verða vígðir
við formlega athöfn síðar en með
þessu sameiginlega átaki þjón-
ustuaðila, verktaka og yfirvalda
er stuðlað að bættu umhverfi og
betra aðgengi á Íslandi.
SJ
Aðgengi bætt með
römpum
Þökkum styrktaraðilum
og sjálfboðaliðum
kærlega fyrir þeirra framlag
við undirbúning og
framkvæmd hlaupsins.