Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 29.06.2023, Blaðsíða 5

Bæjarblaðið Jökull - 29.06.2023, Blaðsíða 5
Fyrir skömmu fóru börnin á leikskólanum Krílakoti í árlega ísferð sína, í mörg ár hafa Ólína og Þórður í Söluskála ÓK tekið á móti börnunum með ís, þau hafa nú selt reksturinn en nýir eigend- ur ákváðu að halda þessari hefð við. Börn og starfsfólk Krílakots vilja koma á framfæri kæru þakk- læti til eigenda Sjoppunnar fyrir frábært framtak. Fimmtudaginn 22. júni s.l. fóru þrír elstu árgangarnir á Kríubóli til Drífu í Hraðbúðinni og gaf hún öllum ís og vilja börn og starfs- fólk Kríubóls koma kæru þakk- læti til hennar. Hressir krakkar í ísferð Við bjóðum upp á alhliða bílaviðgerðir, dekkjaskipti og smurþjónustu. Tímapantanir í síma 436-1111 Sýningin „Anne Herzog Art work og” hefur verið í Samkomu- húsinu á Arnarstapa síðan 8. maí. Síðasti dagur sýningarinn- ar verður 29. júlí. Anne er lista- kona sem starfar á Snæfellsnesi en hún er frönsk. Hún hefur dvalið mikið á íslandi og hef- ur stundað hér nám í myndlist og myndlistarkennslu. Verk sýn- ingarinnar voru bæði blek- og vatnslitateikningar ásamt ljós- myndum. Sýningin hefur vakið mikla athygli hjá ferðamönnum sem heimsækja Arnarstapa og einnig heimamönnum. JJ Listasýning á Stapa

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.