Bæjarblaðið Jökull - 06.07.2023, Blaðsíða 3
Nú í júlí og fram á haust stendur
yfir sýning í Norska húsinu í Stykk-
ishólmi sem ber yfirheitið Hrafn-
hildur sýnir í Norska í húsinu með
Snæfellsnes í huga. Um er að ræða
glerlistasýningu eftir listakonuna
Hrafnhildi Ágústsdóttur eða Rabby.
Hrafnhildur fæddist í Reykjavík en
frá árinu 2001 hefur hún eytt öllum
sumrum að Hnausum á Snæfells-
nesi. Hún hefur sótt námskeið við
Myndlistaskólann í Reykjavík auk
þess sem hún nam glerlist á ýms-
um stöðum í New York og annars
staðar vestanhafs. Á árunum 1987
til 1993 hélt Rabby einkasýningar
í New York og Reykjavík og tók
þátt í samsýningum í New York og
San Francisco. Þá hannaði hún og
gerði glugga úr steindu gleri bæði
í kirkjuna í Vík í Mýrdal og fyrir ný-
byggingu Larchmont Avenue kirkj-
unnar í New York. Hún hefur hann-
að og skapað mörg glerverk eftir
pöntunum frá einstaklingum, til
dæmis lampa og glugga úr stein-
du gleri en síðustu ár hefur hún
einnig hannað og gert diska og skál-
ar úr bræddu gleri. Frá 2018 hefur
hún starfrækt eigið stúdíó í Arizona
en upphaflega var það staðsett í
Larchmont og síðar New York. Eig-
inmaður hennar er Kristján Tómas
Ragnarsson, læknir og Emeritus
Prófessor, og eiga þau fjórar giftar
dætur og 12 barnabörn. Þau hjón-
in bjuggu lengst af í New York, en
búa nú í Arizona á veturna og hafa
eytt sumrum sínum á Snæfells-
nesi líkt og áður kom fram. Sýning
Hrafnhildar í Norska húsinu opnar
laugardaginn 8. júlí og mun standa
til 17. september. Sýningin byggist
aðallega á fuglum á Snæfellsnesi
og öðrum hlutum sem henni þótti
passa við Norska húsið og stemm-
inguna þar. Hrafnhildur talar um að
vera frekar upptekin af fuglalífinu
á Snæfellsnesi, frá því hún og mað-
urinn hennar fóru að eyða sumr-
um sínum á Hnausum fyrir 22 árum
hefur hún tekið eftir því að fugla-
lífið hefur farið minnkandi en sölu-
verð sýningarinnar mun allt renna
til Fuglaverndar. Þá samanstend-
ur sýningin af 38 fuglamyndum og
skálum sem hún hefur unnið að í
vetur auk nokkurra lampa frá fyrri
árum sem eru þó einungis til sýnis.
Hrafnhildur segist hafa gaman af því
að fá að halda sýningu í Norska hús-
inu, hafi það komið til þegar Ragn-
hildur Sigurðardóttir hafi komið í
heimsókn til hennar, séð glerverk-
in og stungið upp á slíkri sýningu
svo það sé í raun henni að þakka
að allt hafi komist af stað. Ekki hef-
ur liðið það sumar sem Hrafnhild-
ur hefur ekki farið í Norska húsið
síðan hún fór að koma á Snæfells-
nesið svo hún er spennt að setja
upp sýninguna og fá að vera hluti
af upplifuninni.
SJ
Fleiri myndir frá Ólafsvíkurvöku
Hrafnhildur sýnir í Norska húsinu
Við bjóðum upp á
alhliða bílaviðgerðir,
dekkjaskipti og smurþjónustu.
Tímapantanir í síma 436-1111