Bæjarblaðið Jökull - 28.12.2023, Blaðsíða 1
Fyrr í þessum mánuði óskaði
menningarnefnd Snæfellsbæj-
ar eftir tillögum íbúa að jólahúsi
Snæfellsbæjar 2023. Jólahús Snæ-
fellsbæjar eru þau hús sem íbú-
um þykja fallega skreytt í tilefni
jólahátíðarinnar. Opið var fyr-
ir tillögur til miðnættis 21. des-
ember en eftir það fór menn-
ingarnefnd yfir niðurstöður og
voru þær kynntar á miðlum Snæ-
fellsbæjar 23. desember síðast-
liðinn. Við yfirferð á innsendum
tillögum frá íbúum kom í ljós
að meirihluti var sammála um
að Lækjarbakki 1 á Arnarstapa
skyldi fá viðurkenningu fyrir fal-
legustu jólaskreytinguna í ár. Sig-
urlaug Konráðsdóttir og Harald-
ur Yngvason eiga hrós skilið fyrir
þetta sannkallaða ævintýraland.
Formaður menningarnefndar,
Ingunn Ýr Angantýsdóttir, færði
hjónunum viðurkenningu fyr-
ir Jólahús 2023 í fallegu vetrar-
veðri á Arnarstapa.
JJ
1095. tbl - 23. árg. 28. desember 2023
Lækjarbakki 1 er jólahús Snæfellsbæjar 2023
Sædís Rún Heiðarsdóttir 19
ára fótboltakona frá Ólafsvík er
gengin í raðir Vålrenga í Noregi.
Hún skrifaði undir þriggja ára
samning við liðið, sem er eitt
besta liðið í Noregi. Samningur-
inn tekur gildi þann 1. janúar og
gildir út tímabilið 2026. Sædís er
eins og flestum er kunnugt upp-
alin hjá Víkingi í Ólafsvík en hef-
ur verið að gera virkilega góða
hluti hjá Stjörnunni undanfarið
og verið lykilmaður hjá liðinu
síðustu þrjú tímabil. Hún hefur
einnig átt fjölmarga leiki með
yngri liðum landsliðsins, spil-
að sem fyrirliði U19 og í ár var
henni launuð framúrskarandi
frammistaða á vellinum með vali
í A-landslið kvenna. Þar hefur
hún nú spilað fimm landsleiki
og fest sig í sessi í vinstri bak-
varðar stöðunni. Það hefur ver-
ið mikill áhugi á henni erlend-
is og fór hún á reynslu til Eng-
landsmeistara Chelsea nýlega.
Sædís fullkomnar nú fótbolta-
árið með því að skrifa undir hjá
Vålrenga í Noregi og mun hefja
árið 2024 á nýjum slóðum. Í sam-
tali á heimasíðu félagsins segist
Sædís hafa trú á því að hún geti
hjálpað til við að gera liðið betra
og hlakkar hana til að þróast sem
leikmaður með liðinu. Þá segir
hún að hún kunni vel við þá hug-
myndafræði sem liðið styðst við
þegar kemur að spilamennsku.
SJ
Sædís til Vålrenga