Bæjarblaðið Jökull - 28.12.2023, Blaðsíða 6
Eigendur Brimhesta á Brimils-
völlum opnuðu hesthúsið fyrir
gestum og gangandi þann þriðja
í aðventu í jólabúningi. Á opna
jólahesthúsinu voru börn teymd
á hestbaki, kaffi, heitt súkkulaði
og kökur voru á boðstólnum og
krakkarnir léku sér. Öll hlaðan var
skreytt og voru allir mjög glaðir
með þetta framtak, bæði staðar-
haldarar og gestir. Mikið af fólki
gerði sér ferð í opna jólahesthús-
ið en stanslaus straumur var allan
tíman á meðan opnuninni stóð og
skein gleðin af andlitum.
SJ
Jólahesthús á
Brimilsvöllum
- Bílaviðgerðir
- Skipaþjónusta
- Almenn suðuvinna
- Smurþjónusta
- Smábátaþjónusta
- Dekkjaverkstæði
vegr@vegr.is vegr.is
S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður
Galleríið 3 Veggir var með áhuga-
verðann listviðburður föstudaginn
22. desember, þá var boðið upp
á málverkasýningu í vinnustofu
Bjarna Sigurbjörnsson í Himin-
björgum á Hellissandi. Sýningin
var samsýning nemenda Bjarna í
málun haustið 2023.
Á myndinni eru málararnir þær
Auður Hilmarsdóttir, Heiðrún Jens-
dóttir og systurnar Ingibjörg og
Steinunn Júlíusdætur. Með þeim á
myndinni eru listamennirnir Bjarni
og Ragnheiður kona hans en þau
eiga húsnæðið sem áður var Versl-
unin Blómsturvellir.
Myndina tók Pétur Steinar
Samsýning nemenda í listmálun
Jökull á Issuu
Til að nálgast Jökul á netinu er hægt
að skanna QR merkið hér að ofan
með myndavélinni í símanum.
Árlega smásögukeppni Jök-
uls fór fram núna fyrir jólin,
þar voru grunnskólanemend-
ur hvattir til að senda inn smá-
sögur til birtingar í jólaútgáfu
blaðsins. Að þessu sinni bárust
aðeins fjórar sögur til blaðsins,
höfundur hverrar sögu fékk bók,
fimm miða í happdrætti Lions-
klúbbs Ólafsvíkur og fimm miða
í happdrætti Lionsklúbbs Nes-
þinga. Allar sögurnar sem send-
ar voru inn í keppnina má lesa
í jólaútgáfu Jökuls og þökkum
við öllum þeim sem sendu inn
sögu fyrir þátttökuna.
Jólasögukeppni
Jökuls
Jökull Bæjarblað
steinprent@simnet.is
436 1617