Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 28.12.2023, Page 1

Bæjarblaðið Jökull - 28.12.2023, Page 1
Fyrr í þessum mánuði óskaði menningarnefnd Snæfellsbæj- ar eftir tillögum íbúa að jólahúsi Snæfellsbæjar 2023. Jólahús Snæ- fellsbæjar eru þau hús sem íbú- um þykja fallega skreytt í tilefni jólahátíðarinnar. Opið var fyr- ir tillögur til miðnættis 21. des- ember en eftir það fór menn- ingarnefnd yfir niðurstöður og voru þær kynntar á miðlum Snæ- fellsbæjar 23. desember síðast- liðinn. Við yfirferð á innsendum tillögum frá íbúum kom í ljós að meirihluti var sammála um að Lækjarbakki 1 á Arnarstapa skyldi fá viðurkenningu fyrir fal- legustu jólaskreytinguna í ár. Sig- urlaug Konráðsdóttir og Harald- ur Yngvason eiga hrós skilið fyrir þetta sannkallaða ævintýraland. Formaður menningarnefndar, Ingunn Ýr Angantýsdóttir, færði hjónunum viðurkenningu fyr- ir Jólahús 2023 í fallegu vetrar- veðri á Arnarstapa. JJ 1095. tbl - 23. árg. 28. desember 2023 Lækjarbakki 1 er jólahús Snæfellsbæjar 2023 Sædís Rún Heiðarsdóttir 19 ára fótboltakona frá Ólafsvík er gengin í raðir Vålrenga í Noregi. Hún skrifaði undir þriggja ára samning við liðið, sem er eitt besta liðið í Noregi. Samningur- inn tekur gildi þann 1. janúar og gildir út tímabilið 2026. Sædís er eins og flestum er kunnugt upp- alin hjá Víkingi í Ólafsvík en hef- ur verið að gera virkilega góða hluti hjá Stjörnunni undanfarið og verið lykilmaður hjá liðinu síðustu þrjú tímabil. Hún hefur einnig átt fjölmarga leiki með yngri liðum landsliðsins, spil- að sem fyrirliði U19 og í ár var henni launuð framúrskarandi frammistaða á vellinum með vali í A-landslið kvenna. Þar hefur hún nú spilað fimm landsleiki og fest sig í sessi í vinstri bak- varðar stöðunni. Það hefur ver- ið mikill áhugi á henni erlend- is og fór hún á reynslu til Eng- landsmeistara Chelsea nýlega. Sædís fullkomnar nú fótbolta- árið með því að skrifa undir hjá Vålrenga í Noregi og mun hefja árið 2024 á nýjum slóðum. Í sam- tali á heimasíðu félagsins segist Sædís hafa trú á því að hún geti hjálpað til við að gera liðið betra og hlakkar hana til að þróast sem leikmaður með liðinu. Þá segir hún að hún kunni vel við þá hug- myndafræði sem liðið styðst við þegar kemur að spilamennsku. SJ Sædís til Vålrenga

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.