Árnesingur - 01.06.1948, Qupperneq 10
10
ÁRNESINGUR
einum afhentar þessar vörur og má þaS
teljast sanngjarnt, að þeir í einhverju
njóti þess félagsþroska, sem þeir sýna með
þvl að skipa sér í raðir samvinnumanna,
og taka með því virkan þátt í starfi þeirra
og baráttu fyrir betri viðskiptum og' lægra
vöruverði. Þessi háttur verður nú tekinn
upp hjá Kaupfélagi Árnesinga og vonum
við, að það mælizt vel fyrir hjá félags-
mönnum vorum. Á aðalfundi félagsins
verður þessa nánar getið.
í þessu tölublaði Árnesings er verðlisti
yfir nokkrar helztu matvörur, þetta ætti
að gefa félagsmönnum kærkomið tilefni til
samanburðar, á verði annars staðar, og til
að hvetja þá, sem enn standa utan við
samtökin til að koma með. Grein um trygg-
ingar er og í blaðinu, hana ættu menn að
lesa og láta svo ekki bíða, þar til of seint
er orðið, að tryggja innbú sitt og annað
verðmæti.
í vor hafa landbúnaðarvélar verið á boð-
stólum hjá oss, meir en oft áður, fram
að þessu aðallega rakstrarvélar, en nú
bráðlega er von snúningsvéla, sem Sam-
bandi isl. Samvinnufélaga hefir tekizt að
festa kaup á I Englandi, það vinnur einnig
að öflun mykjudreifara, heyvagna á
gúmmíhjólum og fleiri tækja, sem vænt-
anlega geta komið fyrir næsta vor, mykju-
dreifarar þó e. .t v. i haust, þá höfum við
nýlega fengið vagnhjól með öxlum, þau
eru frá Noregi, nokkuð dýr en líta vel út
og sterklega.
Þó illa horfi með vöruöflun í augnablik-
inu þá munið félagsmenn, að leita ávallt
fyrst til ykkar eigin verzlunar, því aldrei
hefir félaginu eins riðið á samheldni fé-
lagsmannanna og nú á þessum síðustu
tímum dýrtíðar og vöruskorts.
G. Th.
—--------------------------------------------------------
Bifreiðasmiðja Kaupfálags Árnesinga
Bifreiðaviðgerðir — Boddý- og brettaréttingar — Rennismiðja
Járnsmiðja - Yfirbyggingar á bíla — Landbúnaðarvélaverkst.
Bílamálning — Smurstöð — Logsuða — Rafsuða
Bilamálningarverkstæðið er nýtekið til starfa í sambandi við blfreiðasmiðju vora. —
Sprautum og handmálum bíla.
ReyniÖ viðskiptin.