Óháð vikublað - 09.02.1942, Síða 5
OHAÐ VIKUBLAÐ mánodaginn 9. febrúar 1942
Qeta íslendiogar
skrifað svona?
Fyrir nokkru síöan auglýsti saka-
dómar.i eftir vitnum 1 máli lögregl-
nnnar hér í bænum og tveggja Norð-
manna. Menn þessir munu hafa átt
þátt að einhverskonar útökum á
gamlaárskvöld eða nýársnótt miili
lögreglunnar aimarsvegar og mann-
safnaðar, sem hún var að dreifa, h,ins
veg'ar. -. Nú er svo að sjá sem Norö-
menn þessir dragi í efa heimild ís- j
lenzkrar lögreglu til að halda uppi j
lögum og' reglum á aJmannafæri. Seg- i
ii' svo í auglýsingu sakadómara, aö
oröið hafi »nokkrar sviftingar við |
þá«.
Og auglýsing sakadómara virðist I
fullkomlega gefa til kynna, aó ein-
hverskonar má.la&tapp eigi sér staö
úí af þessum atburði. i>aö er al-
kunna, að íslenzk yfírvöld, hærri og
lægri, eiga í ærnum vanda gagnvai t
fraanandi öflum, seni Utt spyrja um
lög og rétt á fslandi, ef þau telja
hagsmuni sína. a.nnars vegar. Allir
góðir íslendingar óska þess, að þjóö-
in megi bera gæfu til að s.ta.nda al-
gerlega sameinuð gegn þessum öflum,
hvað sem líður ágreiningi i innan-
landsmálum. Þó eru. til íslenzk blöð,
sem öðru hvorú, virðast meta málstað
útlendinganna meira en málstað sinn-
ai eigin þjóðar. Pann.ig geröi Alþýöu-
hlaðið málstað fyrrnefndra Norð-
manna. að sínum málstað og virtist
líta á þá sem einskonar píslarvotta.
Jafnframt fólst í ummælum blaösins
illa dulin hvatning til væntanlegra
vitna í málinu, sem orða mætti á
þessa, leið: »Blessaðir »pundið« þio
nú á lögreglu.na! Hún á fyrir þvíi
Hér eiga útlendingar hlut aö niáli
o( þetta er því tilvalið tækifæri til
að klekkja á lögreglunni svo aö um
munar!« — Slík skrif sem þessi
mættu vissulega fremur kenna vid
landráð en hin, þar sem verið er að
halda, uppi vörn íyrir islenzkan mál-
Stað gegn ágengni útlendinganna.
fslendingar geta ekki skrifað svona.
Til þess þarf ásvikna kvislinga.
í uæsta hlaði rerður 111. a. rætt um
(iau ste/nnhvörf í st.iórnuiálum luuds-
ins, sem úrslit bæ.iai’stjórna- oa
t'reppsnefnðfli'kosiiliiKanna lelða í l.iós.
H t Eiaiskipafélag íilands
Aðalfundup.
Aðalfundur Hlutaíelagsins Eimskipafélags Islands
verður haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins
í Heykjavík. latigardaginn G. júní 1942 og hefst kl.
1 e. h.
DAGSKRÁ;
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram-
kvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhög-
uninni á yfirstandi ári. og ástæoum fyrir henni.
°» leggur fram tii úrskurðar endurskoðaða rekst-
ursreikninga til 31. des. 1941 og efnahagsreikn-
ing með athugasemdum endurskoðenda, svörum
stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá end-
urskoðendum.
2. I'ekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um
skiftingu ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjóvn félagsins í stao
þeirra, sem úr ganga samkvæmt félagslögunum.
4. Kosning eins endnrskoðanda í stað þess, er frá
fer, og eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem
upp kunna ;ið verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngu-
miða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum og umbóosmönnum hluthafa á skrifstofu fé-
lagsins í Reyk.javík. dagana 3. og 4. júní næstk.
Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að
sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Revkjavík.
Reykjavík, 26. jatnuar 1942.
STJORNIN.
Auglýsing
nm vegabréf
Samkvæmt heimild í bráöabirgðalögum frá 9. des.
1941 um notkun vegabréfa innanlands heiur dóms-
málaráðuneytið fyrirskipað, að allir menn, konur
og karlar, 12 ára og eldri, hér í umdæminu skuli
bera vegabréf. Vegabréf þessi verða gefin út hér
við embættið, og hefst afhending þeirra nú á næst-
unni. Vegabréfin verða með mynd af vegabréfshafa.
og er öllum skylt að afhenda tvær skýrar myndir
af sér, en að öðru leyti verða vegabréfin liitin í té
ókeypis. Athygli almennings hér í bænum er því
vakin á því, að hafa til taks 2 myndir í þessu skyni.
Auglýst verður nánar hvenær afhending vegábréf-
anna hefst.
Lögreglustjórinn í Reykjavík. 23. jan. 1942.
AGNAR KOFOED-HANSEN.
Tilkynning;
til bifreiðastjóra
Að gefnu tilefni eru bifreiðastjórar alvarlega á-
minntir um að hafa fullkomin, lögboðin frarn- og
aftur-ljósker á bifreiðum sínum, er séu tendruö á
ljósatíma. Ljósin mega ekki vera svo sterk, né þann-
ig stillt, að þau villi vegfarendum sýn. Ennfrem-
ur skulu skrásetningarmerki bifreiða vera tvö og
ávallt vel læsileg. Má ekki taka þau af eða hylja
á nokkurn hátt, meðan bifreiðin er notuð. Lögregl-
an mun ganga ríkt eftir aö þessu veroi hlýtt, og
verða þeir, sem brjóta gegn þessu, látnir sæta ábyrgö.
Reykjavík, 8 .jan. 1942.
Lögreglustjórinn í Reykjavík.
AGNAR KOFOED-IIANSEN.