Þroskaþjálfinn - 18.05.2000, Síða 3
Afmælisblað Þroskaþjálfafélags íslands
EFC^DSyfirlit
Skrif formanns ÞÍ.
Sólveig Steinsson formaður Þroskaþjálfafélagsins . 5
Þættir úr sögu þroskaþjálfastéttarinnar
Hrönn Kristjánsdóttir tók saman ................... 7
Þá hugsjónir rætast...
Gréta Bacmann fyrsti formaður Þroskaþjálfa-
félagsins skrifar..................................10
„Ég fór að Skálatúni með loforð um að vera þar
4-6 vikur en árin urðu 14“ ........................10
„Enginn fáviti er geðveikur.
Til að missa vit þarf að hafa það“............... 10
„Formannstími minn var e.t.v. styttri en
orðið hefði...“....................................11
„f fyrstu notaði ég sumarfríin mín og greiddi
allan kostnað sjálf...“ ...........................11
„Fyrsta foreldra- og hagsmunafélag tengt slíkri
stofnun var stofnað í Skálatúni vorið 1971“ .......11
„Nýr vettvangur... “ ..............................12
„Ég vildi reyna að fá verkefni frá fyrirtækjum og
fá greiðslu fyrir“.................................12
„Varla kom sá gestur eða gangandi...að ekki
væri sagt frá Spánarferðinni“ .................... 12
„Bóklegt og verklegt nám auk íþróttakennslu
voru þær greinar er kenndar voru“ .................13
„...þar með hefst saga fyrsta sambýlisins á landinu..." . . 13
„Sýning þessi var mjög fjölsótt og áreiðanlega mikil
kynning á málefninú'...............................13
„Við börðumst við tárin“...........................14
„Mér hefur auðnast að sjá svo miklar framfarir...“.14
Myndir frá afmælisárshátíð ÞI........................16
Víða er pottur brotinn
í þjónustu við aldraða þroskahefta.
Vera Snæhólm skrifar ..............................19
Búseta fatlaðs fólks
Hrönn Kristjánsdóttir skrifar ....................21
Inngangur..........................................21
Hugmyndafræði og nýjar skilgreiningar..............21
Einstaklingsmiðuð þjónusta.........................22
Niðurlag...........................................23
Norsku lögin um valdbeitingu og þvingun í
meðferð þroskaheftra.
Kristrún Sigurjónsdóttir skrifar...................25
Af hverju lagasetning?.............................25
Lögin..............................................25
I starfí með daufblindum
Lilja Þórhallsdóttir skrifar ......................29
* Félagsmenn.......................................29
* Upplýsingamiðstöð................................29
* Félagið..........................................29
* Samstarf við útlönd .............................29
Hvað er daufblinda.................................29
Hópar daufblindu...................................29
Samskiptaleiðir....................................30
Lokaorð ...........................................30
Frá Útgáfuráði
Betra seint en aldrei. Hér með er komin út afmælisútgáfa „Þroskaþjálfans“
að vísu nokkuð á eftir áætlun en samt ekki svo að til skaða geti talist. Við
gætum hæglega komið með langan lista hversvegna svo fór, en við gerum
það ekki. (En við eigum til lista af góðum afsökunum á lager sem við
getum notað ef einhver óskar!!!!)
Okkur langar að þakka sérstaklega öllum þeim er lögðu oklcur til efni
í blaðið. Við fengum að okkar mati góðar greinar og vel unnar, sem sparaði
olrkur töluverða vinnu.
Sérstaklega viljum við benda á að 2 greinar byggjast að einhverju leyti
á B.Ed verkefnum viðkomandi þroskaþjálfa sem er skemmtilegt með tilliti
til að þar er undirstrikað að þroskaþjálfanámið er formlega orðið
háskólanám.
Síðasta útgáfuráð hafði unnið að útgáfu tveggja „Þroskaþjálfa“ og settu
okkur vel inn í verkið og létu olckur vita af ýmsum „pyttum“ er við gætum
dottið í og er skemmst frá því að segja að þrátt fyrir viðvaranir þeirra
duttum við í þá flesta. Við vorum viss um að fólk hópaðist að með greinar
og leveðjur til blaðsins í þvílíku magni að erfitt yrði að koma öllu fyrir.
Þetta reyndist fullmikil bjartsýni. Nú á tímum , mikillar vinnu og lélegra
launa er fólk skiljanlega upptekið. Það að setjast niður og skrifa um starf
sitt og hugmyndir er eleki forgangsmál. Fólk skildi átta sig á því að með
því að taka þátt í umræðum, miðla af reynslu sinni og þekkingu og
kynnast því sem aðrir eru að gera, fær fólk margfalda ánægju til baka og
um leið tilfinningu fyrir því að starf þeirra sé mikilvægt og árangur
kannski mun meiri en það hefur gert sér grein fyrir. Þroskaþjálfar hafa
verið í forystu við að innleiða ný viðhorf og aðferðir í þjónustu við fatlaða
en um leið sú stétt sem hefur minnst látið á sér bera. (Unnið störf sín í
hljóði eins og konan forðum sem kynnti ofn skáldsins fyrir norðan. En
það er önnur saga! ) Það er að okkar mati kominn tími til að breyta því.
Forsíða blaðsins vekur sjálfsagt furðu einhverra. Hún er eins og flestir
sjá af Landspítalanum í Kópavogi áður „Kópavogshæli" Myndin er tekin
á 7. áratugnum. Það er nokkuð ljóst að „Kópavogshælið“ er eklci það
búsetuform er við teljum æskilegt í dag. Þarna liggur samt vagga
þroskaþjálfastarfsins og því töldum við við hæfi að setja mynd af staðnum
á forsíðu. Þar búa nú um tæplega 60 fatlaðir einstaklingar og fer fækkandi.
Því má segja að það sé við hæfi að kveðja staðinn sem hefur verið
persónugervingur íyrir altækarstofnanir hér á íslandi því að líkur eru á að
þegar næsta afmælisrit kemur út verði flestir fatlaðir íbúar fluttir þaðan.
(Svo má ekki gleyma að við er skipum útgáfuráð að þessu sinni erum öll
starfandi á Landspítalanum í Kópavogi).
Um leið og við óskum þroskaþjálfum til hamingju með afmælið vonum
við að þroskaþjálfun og þroskaþjálfar verði mun sýnilegri hér eftir.
Útgafuráð skipa:
Bára Kristjánsdóttir, Jón Berg Torfason, Kristjana Sigurðardóttir,
Magnús H. Björgvinsson og Ragnheiður E. Ragnarsdóttir.
Útgefandi Þroskaþjálfafélag fslands • Hamraborg 1 • Sími 5640225
Tölvupóstur th-isl@islandia.is • Heimasíða http://www.islandia.is/-th-isl
Abyrgðarmaður Sólveig Steinsson
Prentun og uppsetning: Steindórsprent-Gutenberg • Auglýsingasöfnun: Markaðsmenn ehf
3