Þroskaþjálfinn - 18.05.2000, Side 29
Afmælisblað Þroskaþjálfafélags íslands ll
í starfi með daufblindum
Lilja Þórhallsdóttir þroskaþjálfi skrifar
Ég útskrifaðist frá Þroskaþjálfaskóla Islands vorið 1996. Ég
byrjaði að vinna sem þroskaþjálfi á Skálatúnsheimilinu í
Mosfellsbæ. Ari síðar sá ég auglýsingu í Morgunblaðinu
þar sem óskað var eftir daufblindraráðgjafa hjá Dauf-
blindrafélagi Islands. Þar sem vinna mín að verkefnum
tengdum daufblindum í skólanum hafði vakið áhuga minn
á þessu sviði ákvað ég að sækja um þessa stöðu sem ég og
fékk. Þar hef ég starfað síðan. Til að fá sérhæfingu í
málefnum daufblindra hef ég sótt fjölda námskeiða sem
tengjast því beint bæði hérlendis og erlendis.
Daufblindrafélag Islands var stofnað 25. mars árið
1994. Tilgangur þess er að vinna að hvers konar menn-
ingar- og hagsmunamálum daufblindra. I félaginu eru 32
félagar en samkvæmt rannsóknum á fjölda daufblindra á
Norðurlöndum ætti fjöldinn að vera 40-70 manns á
Islandi. Félagið er ungt og vandinn hefur verið sá að
enginn einn aðili sér um að greina daufblindu, það hefur
því verið meira tilviljunum háð hver gengur í félagið. En
það þyrfti að skrá fjölda daufblindra sérstaklega.
Starf mitt skiptist í fjögur svið og þau eru:
/ Félagsmenn
Starfsmaður annast ráðgjöf við daufblinda og aðstand-
endur þeirra og styður félagsstarfið almennt og vinnur að
hagsmunamálum daufblindra.
y Upplýsingamiðstöð
Skrifstofa Daufblindrafélags Islands er upplýsingamiðstöð
um málefni daufblindra. Starfsmaður sér um fræðslu og
kynningu á daufblindu í skólum og á vinnustöðum og ekki
síst þar sem daufblindir einstaklingar dvelja t.d á sam-
býlum. Einnig er það hlutverk hans að styðja starfsfólk
sem vinnur með daufblindum og hjálpa þeim að finna
viðeigandi lausnir, ef upp koma einhver vandamál.
•/ Félagið
Starfsmaður sér um almenn skrifstofustörf félagsins, annast
fjármál félagsins og hefur yfirumsjón með því að fylgi-
skjölum bókhalds sé haldið vel og skipulega til haga.
t/ Samstarf við útlönd
Daufblindrafélag Islands hefur töluvert samstarf við önnur
daufblindrafélög á Norðurlöndum. Einu sinni á ári er
formannafundur þar sem formenn allra daufblindrafélaga
á Norðurlöndum hittast og ræða ýmis málefni og kynntar
eru nýjungar í vinnu með daufblindum. Löndin skiptast
á að halda formannafundinn og á síðasta ári var hann
haldinn hér á Islandi í fyrsta sinn.
Við eru einnig í samstarfi við NUD en það er norræn
menntastofnun (Nordisk uddannelsecenter For Dov-
blindepersonale) fyrir starfsfólk sem vinnur með dauf-
blindum. Stofnunin er staðsett í Danmörku og við á
skrifstofunni erum tengiliðir við stofnunina og reynum
meðal annars að finna starfsfólk hér á landi sem vinnur
með daufblindum til að sækja námskeið hjá þeim.
Hvað er daufblinda
Einstaklingur er daufblindur ef hann er bæði alvarlega
sjón- og heyrnarskertur. Sumir daufblindir eru algjörlega
heyrnarlausir og blindir, aðrir hafa örlitla sjón og heyrn.
Samsetnig þessara fatlana hefur þannig í för með sér mikla
einangrun og erfiðleika með samskipti, skynjun á
umhverfi, aðgang að upplýsingum og að komast leiðar
sinnar. Hver daufblindur einstaklingur ætti í raun að vera
bæði með túlka og leiðsögumann með sér.
Hópar daufblindu
Daufblindum má í raun skipta í þrjá hópa. Sumir eru
fæddir daufblindir og glíma þá við ýmsar viðbótarfatlanir
29