Læknablaðið - 01.05.2023, Síða 23
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 247
R A N N S Ó K N
til að koma í veg fyrir óþarfa fjöllyfjameðferð og þar með
minnka kostnað og hættu á aukaverkunum.33 Rannsókn sem
framkvæmd var í Portúgal sýndi að yfir 70% inniliggjandi
sjúklinga á lyflækningadeild notaði 5 eða fleiri lyf og var PPH
sá lyfjaflokkur sem oftast var talinn óviðeigandi.34 Notkun
lyfja þar sem þeirra er ekki þörf getur einnig valdið aukaverk-
unum og stuðlað að enn meiri lyfjanotkun.33 Vandamálið felst
ekki í fjöllyfjameðferð heldur í eftirfylgni lyfjanotkunar en
skortur á henni getur leitt til auka- og milliverkana lyfja.35,36
Flestir þeirra sem hófu notkun höfðu gengist undir kvið-
arholsskurðaðgerð. Klínískar leiðbeiningar ráðleggja í sumum
tilfellum notkun PPH við innlögn á sjúkrahús en áfram-
haldandi notkun þeirra í kjölfar skurðaðgerða má oft rekja til
ófullnægjandi eftirfylgni við útskrift.16 Rannsóknir hafa sýnt
fram á tengsl PPH-ávísana við ákveðnar deildir, til dæmis
lungna-, gigtar-, meltingar- og krabbameinsdeildir, auk tengsla
við taugaskurðaðgerðir.4 Niðurstöður okkar benda til þess að
frekari eftirfylgni með þeim sjúklingahóp sem undirgengst
kviðarholsskurðaðgerðir sé nauðsynleg til að endurmeta
ábendingu PPH.
Meðal styrkleika rannsóknarinnar er lýðgrundaður lyfja-
gagnagrunnur sem hefur verið réttmætiskannaður og er
nákvæmni hans talin meiri en 95%. Þá var einnig notað allt
þýðið úr Íslenska aðgerðagrunninum. Íslenski aðgerðagagna-
grunnurinn inniheldur gögn fyrir alla sjúklinga sem geng-
ust undir skurðaðgerð á Landspítala á árunum 2006-2018,
en spítal inn framkvæmir aðgerðir fyrir meirihluta lands-
manna og er auk þess tilvísunarsjúkrahús fyrir landið allt.
Með þessu er tryggt samræmi á milli einsleits sjúklingahóps
auk framkvæmdar skurðaðgerðar og góðrar eftirfylgni þar
sem brottfall er ekkert.
Veikleiki rannsóknarinnar er meðal annars að hún er aftur-
skyggn og byggir á skráðum klínískum gögnum þar sem höf-
undar þurfa að reiða sig á að upplýsingar séu rétt skráðar. Þá
höfum við hvorki upplýsingar um ábendingar upphaflegrar né
áframhaldandi notkunar. Ekki voru skoðaðar skurðaðgerðir á
öðrum sjúkrastofnunum á Íslandi, en aðrar heilbrigðisstofnan-
ir hér á landi sinna einnig skurðaðgerðum og líklegt er að hluti
sjúklinga hefji notkun PPH í kjölfar þeirra. Lyfjagagnagrunnur
landlæknis byggir á útleystum lyfjum sjúklinga en ekki voru
til staðar upplýsingar um notkun lausasölulyfja hjá sjúklingum
sem gengust undir skurðaðgerðir. Þó má segja að langvinnir
Mynd 3. Árlegt nýgengi prótónpumpuhemla
(PPH) notkunar í kjölfar skurðaðgerða og hlutfall
nýrra langvinnra notenda frá 2006-2018.
Mynd 4. Samanburður á
útleysingarmynstri milli sjúklinga
sem notuðu PPH fyrir aðgerð (fyrri
PPH notendur, rauður), þeirra sem
hófu notkun PPH og héldu áfram
notkun lengur en í þrjá mánuði
eftir skurðaðgerð (nýir langvinnir
PPH notendur, gulur), þeirra sem
hófu notkun PPH í tengslum við
skurðaðgerð (nýir PPH notendur,
grænn) og þeirra sem notuðu PPH
hvorki fyrir né eftir aðgerð (nota ekki
PPH, blár).