Læknablaðið - 01.05.2023, Blaðsíða 43
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 267
viðbrögð eins og starfræn flog. Einnig
kemur vel fram hversu misskilin starf-
ræn veikindi eru, bæði almennt í sam-
félaginu en líka innan læknisfræðinnar.
Sögurnar í bókinni sýna það
skýrt að þetta eru ekki upp-
gerðarveikindi eða athyglis-
sýki.
Bókina Into the Grey Zone
las ég þegar ég starfaði sem
sérnámslæknir á lyflækn-
ingasviði. Höfundur er
Adrian Owen, prófessor í
taugavísindum og vitrænni
myndgreiningu (cognitive
imaging) sem hef-
ur einbeitt sér að
rannsóknum á sjúklingum
í meðvitundardái (vegetative
state). Hann lýsir vel þeim
takmörkunum, áskor-
unum og siðfræðilegum
sjónarmiðum sem tengjast
viðfangsefninu; gráa svæð-
inu þegar einstaklingur
er talinn vera vakandi án
meðvitundar.
Það má segja það sama um Owen
og O’Sullivan, honum tókst að láta mig
upplifa á köflum að ég væri komin í
sama herbergi og rannsóknarteymið
með tilheyrandi gæsahúð. Hann segir
frá rúmlega 20 ára tímabili þar sem
hann reynir að skilja hvað felst í því
að vera með meðvitund og síðar hvort
hægt sé að ná sambandi við sjúklinga í
meðvitundardái. Annað sem hreif mig
Það voru tvær bækur sem komu upp í
hugann við gerð þessa pistils. Báðar tel
ég eiga erindi við aðra lækna auk þess
sem þær gáfu mér gæsahúð og hrað-
takt við lesturinn. Þetta eru
bækurnar It’s All in Your
Head og Into the Grey Zone.
Báðar bókakápurnar gripu
athygli mína í Waterstones-
bókabúðinni við Gower
Street í London, sem er einn
af mínum uppáhaldsstöðum.
Bókina It’s All in Your
Head las ég sumarið eftir út-
skrift úr læknadeild sem var
gott nesti inn í kandídatsár-
ið. Hún er listilega vel skrif-
uð af Suzanne O’Sullivan, taugalækni og
klínískum taugalífeðlisfræðingi. Bókin
fjallar um starfræn veikindi og hver kafli
segir frá einu tilfelli.
Það sem mér finnst gera bókina
áhrifaríka er frásagnarstíll O’Sullivan.
Hvernig hún nær að virkja ímyndunar-
aflið svo lesandinn upplifi að hann sitji
með henni í viðtali ásamt því hvernig
hún segir sögu sjúklinganna af virðingu
og samhygð. Hún útskýrir einnig mun-
inn á sjúkdómi og veikindum – þó að
sjúkdómur hafi verið útilokaður gætu
enn verið veikindi til staðar sem þyrftu
einhvers konar meðferð og stuðning.
O’Sullivan lýsir líka vel rófi líkam-
legra viðbragða við hugrænu ástandi,
allt frá því að tárast af sorg eða gleði,
roðna við vandræðaleg tilefni yfir í
ýktari, óeðlilegri og verulega hamlandi
Hvaða bók hefur fylgt þér lengst,
þú hefur lesið oftast eða haft mest áhrif á þig?
Anna Kristín Gunnarsdóttir
sérnámslæknir í geðlækningum
Þar sem hugur og líkami mætast
við bókina er hversu mikinn ávinning
sjúklingar og aðstandendur þeirra gætu
haft af rannsóknum hans. Fljótlega
upplýsir hann lesandann á hvaða hátt
viðfangsefnið stendur honum nærri, sem
gerir bókina persónulegri og innihalds-
ríkari.
Annað sem krækir snemma í athygli
lesandans er saga sjúklings sem síðar
setur sig í samband við Owen og þakkar
honum fyrir að „hafa fundið sig“. Ég vil
ekki fara nánar út í framvindu tilfellanna
þar sem það myndi skemma spennuna
fyrir þeim sem gætu hugsað sér að lesa
bókina.
Báðar bækurnar dýpkuðu
þekkingu mína og nálgun
á starfrænum veikindum
og meðvitundarleysi. Sögur
einstaklinganna eru átakan-
legar og góð áminning um
það hversu hverfult lífið getur
verið. Eftir lestur þeirra beggja
verður maður enn þakklát-
ari fyrir heilsuna og hvers-
dagsleikann.
Þessa dagana er ég að lesa bókina Farsótt eftir Kristínu Svövu Tómas dóttur
og sonur minn er dyggur aðstoðarmaður. Mynd/Helgi Hrafn
Ég skora á Halldóru Jónsdóttur geðlækni að skrifa
næsta pistil. Ég veit fyrir víst að ég er ekki ein um
það að hafa útbúið lista yfir þær bækur sem hún
mælir með og hugsa að margir hefðu gaman af því
að heyra um um þá bók/bækur sem hefur fylgt henni
lengst, hún lesið oftast eða haft mest áhrif á hana.