Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2023, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 01.05.2023, Blaðsíða 44
268 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 Guðjón Haraldsson þvagfæraskurðlæknir Ég reikna með að flestum unglækn- um sé svipað farið og mér að loknu lækna náminu, að fara inn í starfið með opnum huga, þar sem möguleikarnir á framtíðar starfi eru svo ótrúlega margir. Í mínu tilfelli var það ekki fyrr en á kandídatsárinu að ég fór að velja mér grunnlínur framtíðarvinnu. Fann fljót- lega að mér hugnuðust mun frekar hand- lækningar en lyflækningar, þótt ég héldi báðum meginleiðum opnum framan af. Að kandídatsárinu loknu bauðst mér staða deildarlæknis á handlækningadeild Landspítalans 13 D. Þar voru fremstir í flokki Egill Jacobsen, Hannes Finnboga- son og Halldór Jóhannsson, sem allir voru miklar fyrirmyndir í þvagfæra- skurðlækningum, almennum skurðlækn- ingum og æðaskurðlækningum. Egill Jacobsen var mér mikil fyr- irmynd og kynnti fyrir mér tækni og nýjungar þvagfæraskurðlækninga, sem voru að brjóta sér leið um allan heim frá því að vera undirgrein almennra skurðlækninga og verða fullgild sér- grein. Hvatti hann mig til sjálfstæðra vinnubragða og gaf mér færi á að kynn- ast þvagfæraskurðlækningum og auka þekkingu mína undir hans handleiðslu. Að loknu rúmu ári á Landspítala og fyrir tilstilli Egils fékk ég námsstöðu við Central-sjúkrahúsið í Karlskrona í Suður Svíþjóð 1982. Í Karlskrona starfaði þýskættaður þvagfæraskurðlæknir, dr. Hjalmar Jans- sen, sem var einn ötulasti baráttumaður fyrir framgangi og sjálfstæði þvagfæra- skurðlækninga, sem ég hef kynnst, og lærði ég sérgreinina hjá honum. Hlaut ég sérfræðiviðurkenningu í þvagfæraskurð- lækningum og almennum skurðlækn- ingum, sem þá var til siðs. Vegna áhuga míns á tækninýjungum í þvagfæraskurðlækningum, einkum í holspeglunum og nýrnasteinameðferð, sótti ég um stöðu við Sahlgrenska- sjúkrahúsið í Gautaborg, en þar var mikill gangur í þessari þróun ásamt nýj- ungum í höggbylgjutækni við meðferð nýrnasteina. Á Gautaborgarárunum vann ég sam- hliða klínískri vinnu að rannsóknum á súrefnisskortsáverkum á nýrum undir handleiðslu Olaf Jonsson og lauk þeirri vinnu með doktorsritgerð 1993. Starfaði ég síðan sem aðstoðaryfir- læknir og yfirlæknir þvagfæraskurð- deildarinnar í Karlskrona uns við flutt- um til Íslands 1994. Hef síðan starfað við þvagfæraskurðlækn- ingadeild Landspítala við Hring braut og seinni árin einkum helgað mig starfi við meðferð nýrna- steina og rekstur nýrna- steinbrjótsins Mjölnis. Hefur þetta verið afar fjölbreytilegt starf og mikill fjöldi sjúk- linga er meðhöndlaður þar árlega. Þótt ég hafi vegna aldurs lokið störf- um á Landspítala hef ég notið þeirrar ánægju að vera kallaður inn til starfa við steinbrjótinn ef þörf hefur verið á aukamönnun. Einnig er ég enn með stofurekstur tvisvar í viku, en það er ekki auðvelt að draga þannig starfsemi saman og ljúka henni eftir margra ára rekstur. Þegar litið er yfir farinn veg er það mikilvægast að hafa kynnst þessu frábæra sérfagi og þeim læknum sem starfað hafa við það og þannig fengið að vera þátttakandi í þróun þess, und- ir handleiðslu og samvinnu frábærra lækna. Sérfræðilæknar svara: Hvernig varð sérgrein þeirra fyrir valinu? Hvar lærðu þeir? Hvaða ráð gefa þeir ungum læknum? Seinni árin hef ég einkum starfað við meðferð nýrnasteina Á Gautaborgarárunum vann ég samhliða klínískri vinnu að rannsóknum á súrefnisskortsáverkum á nýrum undir handleiðslu Olaf Jonsson.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.