Læknablaðið - 01.10.2023, Side 9
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 437
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Hafa stjórnvöld og stjórnendur HÍ
einhverja stefnu um námsframboð og
stærð deilda, eða á allt að vera opið í
þeim efnum? Hættan er að langvarandi
undirfjármögnun háskólastigsins
beini nemum í námsgreinar sem
er auðveldara að kenna með færri
kennurum og þar með ódýrara.
doi 10.17992/lbl.2023.10.760
Sögu læknanáms hérlendis má rekja til stofnunar
landlæknisembættisins árið 1760, en eftir ítrek-
aðar kröfur landsmanna var Læknaskóli Reykja-
víkur loks stofnaður árið 1876. Hann varð ein af
grunnstoðum Háskóla Íslands við stofnun hans
árið 1911.
Hlutverkum háskóla í samfélaginu má lýsa
með einföldu mati á fjölda nema sem útskrifast
með tilteknar gráður og hins vegar með því að
leggja mat á rannsóknarafurðir eins og ritrýndar
vísindagreinar. Slíkt mat er einföldun en þó gagn-
legt ef aðferðafræðin er samræmd og bornir eru
saman margir skólar með áþekk hlutverk. Alþjóð-
lega gagnasafnið SciVal gerir okkur kleift að bera
saman háskóla á grundvelli vísindalegra birtinga.
Þannig má jafnframt bera saman stærð, eða hlut-
deild fræðasviða innan skólanna. Þegar HÍ er
skoðaður með þessum hætti áratuginn 2013-2022
sést að 29% af öllum vísindalegum birtingum þar
flokkast undir fagsviðið „medicine“ sem felur
í sér læknisfræði og stóran hluta annarra heil-
brigðis- og lífvísinda. Skólar á Norðurlöndunum
sem sinna svipuðum hlutverkum og HÍ gerir eru
flestir með mun meira umfang á þessu sviði. Sem
dæmi má nefna Háskólann í Lundi, 36%, Háskól-
ann í Örebro í Svíþjóð, með yngstu læknadeild
landsins, 55%, Háskólann í Björgvin, 39%, og
Háskólann í Árósum, 39%. Við Harvard-háskóla,
sem oftast er talinn besti háskóli í heimi, er þessi
hlutdeild 61%.
Samkvæmt þessu er læknadeild og heilbrigðis-
vísindi almennt of lítil eining innan Háskóla
Íslands. Hafa stjórnvöld og stjórnendur HÍ ein-
hverja stefnu um námsframboð og stærð deilda,
eða á allt að vera opið í þeim efnum? Hættan er
að langvarandi undirfjármögnun háskólastigsins
beini nemum í námsgreinar sem er auðveldara að
kenna með færri kennurum og þar með ódýrara.
Er það eina markmið stjórnvalda eða hafa þau
einhver markmið yfirleitt? Það vekur sérstaka
eftirtekt að frá árinu 2011 hefur fjármögnun svo-
nefndra reikniflokka fyrir kennslu í læknisfræði
við skólann, – reikniflokkar eru notaðir til að
standa straum af grunnfjármögnun starfseminnar
– verið lækkaðir um nærri þriðjung og hafa engar
aðrar greinar við skólann mátt sæta sambærileg-
um niðurskurði. Fyrir vikið hefur deildin þurft
að nýta fjármuni tengda rannsóknarstarfi til að
standa undir skipulagðri kennslu í stað þess að
þeir fjármunir nýtist til að efla rannsóknir innan
deildarinnar. Þannig hefur verið haldið aftur af
fjármögnun og þar með uppbyggingu læknanáms
á Íslandi, enda hefur fjöldi læknanema við lækna-
deild haldist nánast óbreyttur. Áratuginn 2013-
2022 útskrifuðust árlega að meðaltali 47 nemar
með lokapróf frá læknadeild. Þessi pattstaða er þó
vissulega jafnframt tilkomin vegna langvarandi
vanfjármögnunar Landspítala, helstu kennslu-
stofnunar landsins í heilbrigðisvísindum, sem
ekki hefur séð sér fært að taka við fleiri nemum
í verknám nema skerða gæði þess. Þörfin fyrir
lækna hefur þó aukist.
Svo heppilega vill til að á sama tíma er fjöldi
áhugasamra og hæfileikaríkra ungmenna er
vilja leggja langt og strangt læknanám fyrir sig.
Þessum nemum er hins vegar beint í annað nám,
eða þeir þurfa að mennta sig erlendis. Hver er
þróunin á grunnmenntun íslenskra lækna er-
lendis? Samkvæmt upplýsingum frá Læknafélagi
Íslands hefur árlegur fjöldi farið úr 1-2 læknum
útskrifuðum erlendis 2006-2009, í 34 lækna á ári
að meðaltali 2019-2023! Heildarfjöldi íslenskra
lækna sem útskrifuðust úr grunnnámi erlendis
áratuginn 2014-2023 er 243 og þeir
urðu sjálfir að bera kostnaðinn af
því námi. Þessir fjármunir fóru því
úr íslensku samfélagi til að byggja
upp læknadeildir erlendis og hinir
nýútskrifuðu læknar skuldsettu sig
og borguðu brúsann.
Hversu háar upphæðir er um að
ræða? Algengt er að skólagjöld séu
10-15 milljónir fyrir sex ára nám
og síðan bætist við áþekk upphæð
fyrir húsnæði og uppihald. Sé
kostnaðurinn rétt metinn, má gera
ráð fyrir að undanfarinn áratug hafi 490-730 millj-
ónir farið árlega í að standa straum af grunnnámi
lækna erlendis, þar af fór helmingur í að standa
undir starfsemi erlendu háskólanna, byggja þá
upp og ráða kennara þar í sérhæfð þekkingar-
störf. Til að bæta gráu ofan á svart sýnir reynslan
erlendis að skuldastaða nýútskrifaðra lækna við
útskrift hefur óhjákvæmilega áhrif á væntingar
þeirra og kröfur um framtíðartekjur og þar með
val á búsetulandi og sérgrein. Þetta getur leitt til
skorts innan ákveðinna sérgreina þegar fram í
sækir, sem dregur úr aðgengi sjúklinga að þjón-
ustu í þeim greinum.
Er það einhverjum til hagsbóta að flytja þekk-
ingarstörf úr landi og að ungir læknar stígi sín
fyrstu skref í faginu með skuldaklafa á bakinu?
Betri lausnir eru til. Við eigum að snúa af þessari
braut án tafar og byggja þess í stað upp okkar eig-
in skóla og sjúkrahús frekar en að skuldsetja ungt
efnilegt fólk og flytja út þekkingarstörf.
Útflutningur þekkingarstarfa
Export of
knowledge jobs
Magnús Gottfreðsson
MD, PhD, FACP, professor,
Landspitali University
Hospital and Faculty of
Medicine, School of Health
Sciences, University of
Iceland
Magnús Gottfreðsson
sérfræðingur í lyflækning-
um og smitsjúkdómum,
yfirlæknir við Landspítala
og prófessor við lækna-
deild Háskóla Íslands.
Fyrrum ritstjóri Lækna-
blaðsins
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
Vscan Air CL og SL eru lítil og nett ómskoðunartæki sem
hvort um sig hafa tvo mismunandi ómhausa sem skila
kristaltærum myndum beint í spjaldtölvu eða síma.
Nánari upplýsingar og ráðgjöf veita:
Guðmundur Hreiðarsson: gh@fastus.is – S: 891 6109
Erna Dís Brynjúlfsdóttir: erna@fastus.is – S:843 3919
Vscan Air SL
Tveir ómhausar:
„Sector-phased“ ómhaus,
til að meta ástand hjarta,
og linear ómhaus.
Vscan Air CL
Tveir ómhausar:
Abdominal
og linear ómhaus .
HealthCo
Nýtt
Vscan Air