Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2023, Blaðsíða 30

Læknablaðið - 01.10.2023, Blaðsíða 30
458 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 F R É T T I R Sólveig formaður Félags almennra lækna „Við erum stærsti hópur starfandi lækna á Íslandi. Það er breyting tilkomin vegna eflingar sérnáms- ins. Fólk hefur tækifæri til að vinna hér lengur,“ segir Sólveig Bjarnadóttir, nýr formaður FAL ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir „Við finnum að fólk vill leggja áherslu á fjölskylduvænni vinnu. Það verðmet- ur frítímann sinn hærra en áður. Yngri læknar eru ekki spenntir fyrir löngum vöktum og við viljum gera vinnutím- ann eðlilegri og fjölskylduvænni. Það er sama krafa og við sjáum í samfélaginu,“ segir Sólveig Bjarnadóttir sem í maí tók við formennsku í Félagi almennra lækna, FAL, af Þórdísi Þorkelsdóttur. Þórdís situr enn í stjórn félagsins. Sólveig Bjarnadóttir, formaður Félags almennra lækna, segir sérnámið hafa fjölgað félagsmönnum. Sérnám hér á landi hafi jákvæð áhrif á vinnuumhverfið. Mynd/gag veitingu sérfræðileyfis til lækna. Þetta er gríðarlega mikilvægt og við fögnum því að fá nýjan og bættan lagaramma,“ segir hún. Þessi þróun hafi nú leitt af sér að FAL sé orðið stærsta aðildarfélagið innan LÍ. Sólveig segir stjórn FAL hafa áhyggjur af óhóflegu álagi í heilbrigðiskerfinu. Al- mennir læknar vilji geta viðhaldið gæð- um þjónustunnar. „Við keppum að því að veita góða heilbrigðisþjónustu og á þeim faglegu forsendum sem við viljum þannig að við og sjúklingarnir séum sátt við hana,“ segir hún. „Það eru hins vegar brotalamir í kerfinu og við höfum horft á fólk fara í kulnun og höfum áhyggjur af því, ekki aðeins hjá almennum læknum heldur allri læknastéttinni.“ Hún bindur vonir við að hægt sé að taka á vandamálinu. „Til þess þurfa bæði stjórnendur heil- brigðisstofnana og stjórnvöld að koma að málinu. Þetta snýr að framtíðarmönnun heilbrigðiskerfisins og er á þeim skala að það þarf inngrip úr stjórnkerfinu til að leysa það.“ Sólveig segir sérnámið ásamt kjara- málum stærstu áherslumál félagsins en kjaraviðræður hefjist aftur eftir áramót. „Mér finnst vera hugur í fólki hvað kjaramálin varðar.“ Sólveig hefur setið í stjórn LÍ frá 2022. Hún segir það hafa verið hvatningu til að sækjast eftir formennskunni, enda stjórnin kröftug og öflug. „Hópurinn er samstíga og þar er góður andi. Við hlust- um vel á sjónarmið hvers annars.“ Hún segir sérnámsmál hafa ráðið ferðinni í starfsemi félags almennra lækna að undanförnu enda hafi þeim sem sér- mennta sig hér á landi fjölgað hratt. „Undanfarin ár hefur mikilli vinnu verið varið í að byggja upp öflugt sér- nám á Íslandi. Það hefur skilað sér í því að fólk kýs að vinna hér lengur og í sum- um greinum er hægt að klára fullt sér- nám á Íslandi. Það er meira af reyndum sérnámslæknum sem hefur jákvæð áhrif á vinnuumhverfið og er í raun auka þrep í læknamönnun á heilbrigðisstofnun- um,“ segir hún. „Síðustu ár hefur verið unnið að reglugerð um sérnámsgrunn, sérnám og Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir hjarta- læknir hefur ákveðið að víkja úr rit- stjórn Læknablaðsins eftir 5 ára setu. Fyrir hönd Læknablaðsins eru henni þökkuð vel unnin störf og fær hún bestu óskir um góðan framgang í framtíðarstörfum sínum. Sæmundur Rögnvaldsson sér- námslæknir í lyflækningum á Landspít- ala kemur nú inn í ritstjórn. Samhliða læknanámi við Háskóla Íslands hóf Sæmundur doktorsnám og hefur skilað afar ríku vísindastarfi og tók þátt í að byggja upp hið merka vísindaverkefni leitt af Sigurði Yngva Kristinssyni: Blóð- Breytingar í ritstjórn Læknablaðsins skimun til bjargar. Innan þess verk efnis var efni doktors- ritgerðar Sæmundar sem hann varði árið 2022 og ber heitið: Monoclonal gamm- opathy of what significance?: Overcoming the methodological limitations of studying an asymptomatic precursor dis- order. Sæmundur hefur einnig reynslu af kennslu í læknadeild fyrir og eftir útskrift, meðal annars far- aldursfræði, líffræðilegri tölfræði og frumulíffræði. Í dag ber hann ábyrgð á BS-kúrs læknanema. Hann hefur verið meðleiðbeinandi í vísindaverkefnum nokkurra læknanema og birt fjölda ágripa á erlendum vísinda- ráðstefnum og vísindagreinar í virtum erlendum vísindarit- um auk þess að hafa hlotið verðlaun bæði erlendis og hérlendis. Auk alls þessa hefur Sæmundur verið afar virkur í fé- lagsstörfum og slegið í gegn á fjölda árs- hátíða Læknafélags Íslands enda mikill tónlistarmaður og húmoristi. Sæmundur Rögnvaldsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.